Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar 18. september 2026 10:32 Það var sláandi að heyra Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í viðtali í Spursmálum 4. september sl. tala um tekjulægstu hópa borgarinnar sem þá sem gætu ekki „staðið undir sér“. Einnig vakti athygli þegar hún talaði um nauðsyn þess að laða til borgarinnar tekjuhærri hópa, sem að hennar mati „halda hérna skattkerfinu okkar uppi“. Sveitarfélög þurfa að huga að tekjugrunni sínum og sýna ábyrga fjármálastjórn. En þegar farið er að meta fólk út frá því hvort það teljist tekjulind eða kostnaðarliður erum við komin út á varhugaverða braut í Excel-væðingu mannlífsins. Við höfum öll eitthvað fram að færa til samfélagsins og það er takmarkandi að meta fólk eingöngu út frá fjárhagslegu framlagi. Enginn einn stendur undir sér Háar tekjur ákveðinna hópa verða ekki til í tómarúmi. Að baki verðmætasköpun stendur fjöldi fólks sem sinnir störfum sem halda samfélaginu gangandi. Starfsfólk í skólum menntar nemendur, ræstingastarfsfólk heldur vinnustöðum hreinum og umönnunarstéttir styðja við einstaklinga og fjölskyldur þegar þær þurfa á aðstoð að halda. Hugmyndin um að sumir „standi undir sér“ en aðrir ekki gengur ekki upp, því við treystum öll, óháð tekjum, á sameiginlega innviði, þjónustu og stuðning samfélagsins á ólíkum æviskeiðum. Þess vegna er varasamt að meta íbúa út frá því hvort þeir skapi kostnað eða tekjur. Þegar litið er á tekjulága hópa fyrst og fremst sem kostnað er stutt í að umræða og ákvarðanir um þjónustu við ákveðna hópa samfélagsins fari fyrst og fremst að snúast um útgjöld en síður um samfélagslegt mikilvægi. Hlutverk sveitarfélaga er ekki að velja sér arðbærustu íbúana heldur að byggja samfélag þar sem fólk getur tilheyrt óháð aldri, tekjum eða félagslegum aðstæðum. Mælikvarðinn á gott sveitarfélag Mælikvarðinn á gott sveitarfélag felst ekki í því hversu margir tekjuháir íbúar þar búa. Hann felst í því hvort þar sé almennt gott að búa, ala upp börn, eldast og fá stuðning þegar á reynir. Við þurfum að staldra við þegar farið er að líta á fólk sem kostnaðarliði í Excel-skjali. Þá er hætt við að mannleg sjónarmið víki fyrir fjárhagslegum mælikvörðum. Virði manneskju verður aldrei bundið við það hversu háa skatta hún greiðir til sveitarfélagsins. Virði sveitarfélagsins má hins vegar mæla út frá því hvernig það kemur fram við þann sem minnst hefur. Gott samfélag spyr ekki hverjir „standa undir sér“ heldur hvernig við getum staðið saman. Höfundur er borgarfulltrúi Vinstrisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sanna Magdalena Mörtudóttir Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar