Sport

Keppa í róðri með krókódílum

Andri Broddason skrifar
Keppendur í róðri á Ólympíuleikunum árið 2032 þurfa að hafa augun opin fyrir krókódílum í vatninu.
Keppendur í róðri á Ólympíuleikunum árið 2032 þurfa að hafa augun opin fyrir krókódílum í vatninu. Samsett/Vísir

Búið er að ákveða í hvaða vatni verður keppt í siglingum á Ólympíuleikunum árið 2032 sem haldnir verða í Ástralíu. Vandamálið við vatnið er að þar búa yfir 500 krókódílar sem geta vafist fyrir keppendum.

Mikið skipulag fer í að halda Ólympíuleika og þurfa keppnissvæði leikanna að vera í besta mögulega ástandi fyrir heimsins besta íþróttafólk. Skoðað var Fitzroy-vatnið sem er staðsett í Rockhampton í Ástralíu.

Þar var skoðað flæði árinnar og hvernig straumur var í ánni svo hún væri keppnishæf. Hún virtist vera það en skoðunin fólst ekki í því að skoða magn krókódíla í vatninu.

Í grein BBC Sport um málið kemur fram að áin er nú þegar notuð sem æfingaaðstaða og í keppnir fyrir í háskólakeppnum og landsliðið hefur æft í ánni. Búið er að fullvissa skipuleggjendur um að áin sé örugg þrátt fyrir að krókódílar séu í vatninu.

Andrew Liveris, forseti skipulagningar Ólympíuleikanna 2032, gerði lítið úr hræðslu fólks við krókódílana í vatninu þegar hann var spurður út í það á síðasta ári.

„Það eru hákarlar í sjónum en við erum enn að fara á brimbretti þar, þetta snýst um hvað við getum frekar en hvað við getum ekki.“

Nú hefur ánni verið gefið grænt ljós á að hún sé keppnishæf og er nú hægt að skipuleggja endanlega brautirnar þar sem siglingar geta farið fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×