Körfubolti

Ó­trú­legar troðslur: „Með einari!“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jamir Chaplin er skemmtikraftur mikill.
Jamir Chaplin er skemmtikraftur mikill. Sýn Sport

Jamir Chaplin fór að venju mikinn með liði Keflavíkur og líkt og verið hefur fyrstu vikur tímabilsins í Bónus deild karla er hann áberandi þegar tekin eru saman tíu bestu tilþrif umferðarinnar.

Þeir Teitur Örlygsson og Helgi Már Magnússon fóru yfir umferðina í Bónus Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland í gærkvöld ásamt Stefáni Árna Pálssyni. Að venju voru tíu helstu tilþrif umferðarinnar tekin saman.

Chaplin átti þrjú tilþrif af tíu og þá voru einnig þrjú tilþrif frá Meistaravöllum þar sem KR-ingar léku listir sínar í sigri á Sindra. Þorvaldur Orri, leikmaður KR, átti bestu tilþrif vikunnar í þeim leik.

Tíu bestu tilþrifin má sjá í spilaranum.

Klippa: Bestu tilþrif fjórðu umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×