Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Valur Páll Eiríksson skrifar 17. september 2026 15:46 Joanna Wietrzyk vann keppni helgarinnar eftir að hafa kúkað á sig í henni miðri. Hún dró sig afturvirkt úr keppni í dag og afsalaði sér sigrinum. Samsett/X Ástralska íþróttakonan Joanna Wietrzyk hefur beðist afsökunar á því að hafa haldið áfram keppni á Hyrox-móti í Kína um helgina eftir að hún kúkaði á sig í miðri keppni. Hún vann mótið en hefur nú gefið frá sér sigurinn.
Wietrzyk baðst í dag innilega afsökunar á atvikinu sem átti sér stað í Hyrox-keppni í Peking á laugardag. Hún hafi átt að taka aðra ákvörðun meðan á keppninni stóð og dregið sig úr keppni þar og þá. Atvikið fór víða á samfélags- og fréttamiðlum og leiddi til þess að Moritz Fürste, stofnandi Hyrox, baðst afsökunar og tók reglur keppnanna í gegn, líkt og fjallað var um á Vísi í gær. Í yfirlýsingu sem hún deildi á samfélagsmiðlum í dag sagði Wietrzyk: „Ég veit að gjörðir mínar höfðu áhrif á fleiri en mig og ég bið alla sem urðu fyrir áhrifum innilega afsökunar.“ Eftir hörð viðbrögð sagði Wietrzyk, sem fagnaði sigri í keppninni í Peking, að hún myndi draga sig afturvirkt úr keppni og afsala sér sigrinum. Wietrzyk sagði: „Ég vil biðja kínversku þjóðina, samkeppendur mína, áhorfendur og skipuleggjendur Hyrox innilega afsökunar á því sem gerðist í keppninni í Peking.“ Hún skrifaði í færslu á samfélagsmiðlum að hún hefði verið „við fulla heilsu“ í upphafi keppninnar og hefði „enga ástæðu“ til að búast við veikindum. „Þegar ég lít til baka sé ég eftir þeirri ákvörðun að hafa ekki stigið af brautinni. Ég geri mér grein fyrir því að ég hefði átt að taka aðra ákvörðun. Ég tek ábyrgð á ákvörðun minni um að halda áfram og er innilega miður mín vegna þeirra óþæginda og truflunar sem það olli.“ View this post on Instagram A post shared by Joanna Wietrzyk (@joannawietrzyk)
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Sjá meira