Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar 17. september 2026 13:03 Jæja, enn ein PISA-könnunin, enn ein vonbrigðin. Eða kannski voru þau ekki svo mikil því niðurstaðan var í takt við það sem flestir bjuggust við. Enn og aftur mæta ráðherrar, þingmenn og sérfræðingar í viðtöl og barma sér yfir frammistöðunni; menntakerfið minnir helst á ryðgaða hringekju sem hljómar eins og hún gæti dottið í sundur hvað úr hverju. Vafalaust eru margir sem bera ábyrgð á stöðunni, hvort sem það eru getulausir stjórnmála- og embættismenn eða þeir foreldrar sem virðast hafa einsett sér að slátra Guinness-metinu í skjátíma barna. Rót vandans kann þó að liggja annars staðar. Fyrir nokkru skrifaði ég grein þar sem færð voru rök fyrir því að lestrarkennsla hér á landi byggi á röngum grunni og að hljóðakennslu væri ábótavant í fjölda grunnskóla. Í ljósi þessa nýjasta PISA-afhroðs, er þá ekki kominn tími til að þau sem bera ábyrgð á menntakerfinu girði sig í brók og kanni í þaula hvernig við erum að kenna börnunum að lesa? Í raun ætti bágborinn lesskilningur íslenskra ungmenna ekki að koma neinum á óvart enda hefur blandaða aðferðin, þar sem hljóðfræðin er aðeins hluti af náminu, notið mikilla vinsælda í lestrarkennslu grunnskóla. Þar hefur hið svokallaða Byrjendalæsi, sem hefur verið kennt í rúmlega helmingi grunnskóla landsins, farið fremst í flokki. Heila- og taugasérfræðingar hafa þó vitað í marga áratugi að markviss hljóðakennsla er málið, því hún er eina aðferðin sem virkjar vinstra heilahvelið sem skyldi, en þar eiga málþroski og tungumálaskilningur sér stað. Með því að nota aðferðir á borð við Byrjendalæsi erum við að kenna nemendum að nota rangt heilahvel við lesturinn, með þeim afleiðingum að yfir 40 prósent barna í öðrum bekk geta hvorki lesið né skilið texta að neinu marki í lok skólaárs. Auk þess stenst Byrjendalæsi ekki akademíska staðla; engar rannsóknir sem standast lágmarkskröfur um fræðileg vinnubrögð (eins og að hafa samanburðarhópa eða hlutlausa rannsakendur) hafa verið gerðar sem sýna fram á árangur þessarar aðferðar. Engu að síður hefur henni verið hampað í Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands og þar á bæ virðist sárlega vanta þekkingu á markvissri þjálfun og eftirfylgni í lestrarkennslu, sem hlýtur að vekja alvarlegar spurningar um stöðu menntavísinda sem fræðigreinar hér á landi. Segja má að eitruð menning hafi myndast í íslenska skólasamfélaginu; andmæli gagnvart ríkjandi hugmyndum eru vægast sagt illa liðin og jafnvel eru dæmi um að kennarar og fræðimenn hafi hrökklast úr starfi fyrir að hafa gagnrýnt notagildi Byrjendalæsis. Þessi súra menntamenning einkennist kannski helst af því sem kalla mætti eitraða jákvæðni. Allt er í raun frábært og alls ekki má tala um kerfið á gagnrýninn hátt, þá ekki bara Byrjendalæsi heldur líka aðrar mislukkaðar hugdettur á borð við skóla án aðgreiningar og afnám samræmdra prófa. Merkilegt nokk á menntakerfið að kenna nemendum gagnrýna hugsun á sama tíma og hana virðist vanta hjá mörgu skólafólki. Hver sá sem ekki deilir þessari eitruðu jákvæðni er vanalega sakaður um niðurrifsstarfsemi; andrúmsloftið í menntakerfinu minnir því helst á ástandið í samfélaginu á góðærisárunum fyrir hrun þegar þeir sem gagnrýndu útrásina voru sakaðir um að tala bankakerfið niður. PISA-könnunin er auðvitað ekki fullkominn mælikvarði en niðurstöður hennar eru í samræmi við það sem við höfum séð með okkar eigin augum undanfarin ár. Vonandi verður hún loksins það spark í rassinn sem við þurfum til að gera raunverulegar breytingar. Ekki er þó þörf á því að finna upp hjólið; nú þegar eru ýmsir grunnskólar hér á landi sem kenna hljóðaaðferðina með markvissri þjálfun og eftirfylgni þar sem árangurinn lofar góðu. Engu að síður hefur umbótafólk í lestrarkennslu ítrekað lent á vegg í menntakerfinu; er ekki kominn tími til að kerfið greiði því leið í staðinn fyrir að leggja stein í götu þess? Sömuleiðis getum við horft til nágrannaríkja okkar. England hefur þannig sýnt markverðan árangur í PISA og þar hefur einmitt verið lögð áhersla á mikla og markvissa hljóðakennslu, samhliða auknum kröfum til nemenda og kennsluaðferðum sem byggja á vísindalegum grunni frekar en menntafræðikreddum. Það eru einhver mestu forréttindi lífs míns að hafa fengið að starfa sem kennari í meira en áratug og kenna svo mörgum flottum og skemmtilegum nemendum. Þó er ég sorgmæddur yfir því hvernig við sem eldri erum höfum brugðist unga fólkinu. Þau þurfa að ganga í gegnum grunnskólakerfi sem veitir ekki viðunandi undirbúning fyrir framhaldsskóla, sem nær ekki heldur að undirbúa þau fyllilega fyrir frekara nám. Allt of lengi höfum við sem samfélag talað um að bæta menntakerfið án þess að fylgja því eftir af einhverri alvöru. Vissulega eigum við ekki að festast í einhverju endalausu svartsýnisrausi en að sama skapi þurfum við að vera raunsæ gagnvart því risavaxna verkefni sem bíður okkar. Ef við ætlum að sýna jákvæðni, nýtum hana þá til góðra verka og búum til það menntakerfi sem unga fólkið okkar á skilið. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Skóla- og menntamál Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar