Samfélag sem bregst EKKI og sérstakur dómstóll kynferðisbrota Aldís Schram, Anna Ragna Fossberg og Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifa 17. september 2026 08:30 Að loknu málþinginu Vald og ábyrgð, um kynferðisofbeldi og samfélag sem bregst, er haldið var 20. ágúst sl., langar okkur að festa á blað hugleiðingar um til hvaða aðgerða þurfi að grípa varðandi þessi mál. Málþingið fylgdi eftir hlaðvarpsþáttaröðinni Biskupsmálið og að því stóðu Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Stígamót, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis og Vitund. Gabríela Bryndís Ernudóttir, höfundur þáttaraðarinnar, flutti aðalerindið, Jenný Kristín Valberg setti málþingið og Elín Hirst stýrði því og umræðunum á eftir. Anna Ragna Fossberg og Guðrún Ebba Ólafsdóttir lásu upp úr bókum sínum og Aldís Schram flutti frumsamið ljóð. Að lokinni dagskrá voru umræður og fyrirspurnir. Fullt var út úr dyrum í sal Kvenréttindafélags Íslands á Hallveigarstöðum og þó að umræðuefnið væri erfitt mátti finna fyrir mikilli samkennd og baráttuanda. Okkur hefur vissulega miðað áfram á síðustu árum en við erum ekki komin á leiðarenda, því miður. Við undirritaðar höfum allar greint frá kynferðisofbeldi sem við sættum, opinberlega og undir fullu nafni. Það var þrautin þyngri, en jafnframt valdeflandi. Í umræðum á málþinginu kom skýrt fram hve mikilvægt það er að sérhver þolandi finni sína leið til að vinna úr ofbeldinu og upplifi ekki utanaðkomandi þrýsting til að segja frá opinberlega. Ákveði þolandi að gera það er mikilvægt að hann fái ráðgjöf frá fagfólki um hvernig best sé að stíga fram. Ekki er síður brýnt að þolandi fái stuðning í þeirri orrahríð sem iðulega hlýst af slíkri opinberun. Jafningjastuðningur getur auk þess skipt sköpum þar sem reynsla þeirra sem á undan hafa gengið verður nokkurs konar mennskur áttaviti. Samfélagið ætti í ljósi reynslunnar að hlusta á þolendur og sýna þeim virðingu í stað þess að úthrópa þær sem „geðveikar“, með „falskar minningar“, eða einfaldlega hunsa þær. Um er að ræða alvarleg brot sem gegnsýra samfélagið. Baráttunni er því hvergi nærri lokið. Ýmis ljón eru í veginum hyggist brotaþoli leita réttar síns. Kynferðisbrot fyrnast en afleiðingarnar aldrei. Það vekur upp þá spurningu hvort ásættanlegt sé að fyrningarákvæði komi í veg fyrir að þolendur kynferðisofbeldis geti sótt gerandann til saka? Réttarkerfið hefur brugðist þolendum trekk í trekk og reynst þeim áfall á áfall ofan. Tryggja verður þolendum réttlát lög og traustverðugt réttarkerfi. Við leggjum til að stofnaður verði sérstakur kynferðisbrotadómstóll, skipaður sérfræðingum á þessu sviði, í þeim tilgangi að flýta málsmeðferð kynferðisbrota, fjölga kærum og auka líkurnar á réttlátari dómum. Aldís Schram er leikkona, lögfræðingur og höfundur, Anna Ragna Fossberg er doktor í heilbrigðisvísindum, næringarfræðingur og rithöfundur, Guðrún Ebba Ólafsdóttir er fyrrverandi kennari og baráttukona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun