Handbolti

Elín Rósa og Díana Dögg unnu stór­sigur

Andri Broddason skrifar
Elín Rósa Magnúsdóttir var í liði Blomberg-Lippe sem vann stórsigur í dag.
Elín Rósa Magnúsdóttir var í liði Blomberg-Lippe sem vann stórsigur í dag. Blomberg-Lippe

Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir skoruðu sitthvort markið fyrir HSG Blomberg-Lippe þegar liðið vann BSV Sachsen Zwickau í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Strax í byrjun leiks kom í ljóst að HSG Blomberg-Lippe væri sterkara liðið og áttu gestirnir í Zwickau eiginlega aldrei séns. Elín Rósa og Díana Dögg hafa verið í lykilhlutverki með sínu liði en þurftu lítið að hafa fyrir hlutunum í dag.

Strax í hálfleik var staðan 19-9 fyrir Blomberg-Lippe og ljóst að liðið ætlaði að sigla sigrinum þægilega heim. Sóknin róaðist hjá Blomberg-Lippe og hélt liðið forystunni úr hálfleik nánast allan leikinn. Leikurinn endaði með öruggum sigri Blomberg-Lippe 31-20.

Elín Rósa gaf þrjár stoðsendingar í leiknum og Díana Dögg gaf tvær ásamt því að þær skoruðu hvor sitt markið fyrir HSG Blomberg-Lippe. Lilja Ágústsdóttir spilaði fyrir BSV Sachsen Zwickau og náði hún að skora eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×