Innlent

Tvö hnífamál í dag

Eiður Þór Árnason skrifar
Ljósmyndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Ljósmyndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Ívar Fannar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna þjófnaðar í matvöruverslun þar sem tilkynnt var að einstaklingur hefði ógnað starfsfólki með hníf og komist undan. Sá var handtekinn stuttu síðar skammt frá vettvangi og er málið sagt í rannsókn.

Einnig var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem hafði komið á ölhús og verið ógnandi með hníf. Viðkomandi var handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hann verður skýrsluhæfur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Einnig var óskað eftir aðstoð vegna þjófnaðar úr annarri matvöruverslun og var vettvangsskýrsla rituð á vettvangi.

Þá höfðu laganna verðir afskipti af einstaklingi sem grunaður er um sölu og dreifingu fíkniefna og læknalyfja, vopnalagabrot, peningaþvætti og fleira, að sögn lögreglu.

Í ótengdu máli hafi verið óskað eftir aðstoð vegna umferðarslyss þar sem ökumaður bifreiðar ók á einstakling á rafhlaupahjóli. Einn var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl með minni háttar áverka.

Þá aðhafðist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tvívegis í dag vegna vinnuslysa. Í báðum tilvikum voru tjónþolar fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum til frekari skoðunar með minniháttar áverka, að því er fram kemur í tilkynningu.

Öll málin og fleiri voru skráð frá klukkan 5 í morgun til 17 í dag. Þrír eru sagðir vistaðir í fangageymslu lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×