Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 23:26 Sadoski og Seyfried saman árið 2023. Getty Leikarahjónin Amanda Seyfried og Thomas Sadoski hafa sagt það gott eftir níu ára hjónaband. Saman eiga þau tvö börn en segja skilnaðinn hafa verið það besta fyrir fjölskylduna. „
Við höfum verið skilin í smá tíma og það hefur reynst vera rétta leiðin fyrir okkur og fjölskylduna. Við höfum hvort annað að eilífu - og það er GOTT,“ skrifa þau í svari við fyrirspurn People um sambandið. Seyfried og Sadoski hittust fyrst árið 2015 þegar þau léku í leikritinu The Way We Get By. Þá léku þau aftur saman seinna það sama ár í kvikmyndinni The Last Word og staðfestu opinberlega í mars 2016 að þau væru í sambandi. Seinna árið 2016 trúlofaði parið sig og gekk svo í hjónaband í lágstemmdri athöfn árið 2017. Einungis þau tvö voru viðstödd athöfnina auk mannsins sem framkvæmdi athöfnina. „Það var svo fallegt. Það var allt sem það átti að vera. Við vorum bara tvö saman að tala við hvort annað,“ sagði Sadoski í viðtali á þessum tíma. Saman á parið tvö börn, Ninu sem fæddist nokkrum dögum eftir brúðkaupið, og Thomas Jr. sem fæddist árið 2020. Hjónin hafa haldið fjölskyldulífinu að mestu leyndu fyrir almenningi og eru búsett á bóndabæ í norðurhluta New York-fylkis. Þrátt fyrir skilnaðinn virðast þau enn vera vinir en Seyfried birti mynd af Sadoski í hringrásinni á Instagram þar sem hann er með gekkó á öxlinni. Seyfried er heimsfræg leikkona og er meðal annars þekkt fyrir leik sinn sem Sophie í Mamma Mia! og Karen Smith í Mean Girls. Nýverið lék hún á móti Sydney Sweeney í kvikmyndinni The Housemaid. Sadoski er einnig leikari og fór til dæmis með hlutverk Don Keefer í The Newsroom-þáttunum og Matt í Life in Pieces.
Tímamót Bandaríkin Hollywood Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira