Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2026 10:13 Donald Trump lýsti í gær yfir samkomulagi á milli þeirra Vladimírs Pútín og Vólódímírs Selenskí, sem virðist ekki hafa legið fyrir. AP Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir.
Úkraínumenn gerðu drónaárás á olíuvinnslu í Syzran-olíuvinnsluna í Samarahéraði Rússlands. Það er nokkuð stór olíuvinnsla og segja Úkraínumenn að hún sé meðal annars notuð til að framleiða eldsneyti fyrir rússneska herinn. 💥 Ukrainian SOF strike Syzran Oil Refinery in russia’s Samara regionOn the night of September 15, Ukrainian SOF Deep Strike units, in concert with @usf_army and @ServiceSsu , struck the Syzran Oil Refinery in russia’s Samara region. pic.twitter.com/VQZYk93gcl— SPECIAL OPERATIONS FORCES OF UKRAINE (@SOF_UKR) September 15, 2026 Þá gerðu Úkraínumenn einnig árás á drónaverksmiðjur í Taganrog og í Oryol, auk skotmarka á Svartahafi, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Rússar gerðu á sama tíma árásir á vöruskemmur, lestarinnviði í vesturhluta Úkraínu og á hafnarinnviði í suðurhluta landsins, samkvæmt RIA-fréttaveitunni. Í gær lýsti Donald Trump, Bandaríkjaforseti, því yfir að ráðamenn í bæði Kænugarði og Moskvu hefðu samþykkt að ráðast ekki á orkuinnviði hvors annars. Áður hafði hann haldið því fram að hærra olíuverð væri vegna Úkraínustríðsins og árása Úkraínumanna á olíuvinnslur í Rússlandi en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran og meðfylgjandi takmarkana á flutningi olíuafurða frá Mið-Austurlöndum. Sjá einnig: Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Það er rangt hjá Trump. Úkraínumenn hófu árásir á rússneskar olíuvinnslur í nóvember í fyrra og í kjölfarið virðist sem olíuverð hafi lækkað lítillega. Þegar stríð Bandaríkjanna gegn Íran hófst í febrúar tók heimsverðið mikinn kipp upp á við. Rússar bönnuðu ekki allan útflutning á díselolíu fyrr en í júlí á þessu ári. Áður höfðu verið settar minni takmarkanir á sölu díselolíu úr landi. Hvorki Rússar né Úkraínumenn staðfestu að samkomulag hefði náðst en Úkraínumenn hafa um langt skeið boðið Rússum sambærilegt hlé á árásum. Selenskí sagði í gær að um tillögu væri að ræða en ekki samkomulag en hann sagðist einnig efast verulega um að Rússar myndu standa við slíkt samkomulag, ef það myndi nást. Blaðamaður Financial Times í Kænugarði segir að Trump hafi farið fram úr sér í gær. Embættismenn sem hafa komið að viðræðunum milli Bandaríkjamanna, Rússa og Úkraínumanna sögðu honum að hlé á árásum á orkuinnviði hefði verið til umræðu um nokkuð skeið. Ekkert samkomulag hefði þó náðst. NEW: Trump got out in front of his skis when he announced Kyiv and Moscow had agreed to halt strikes on each other's energy facilities, appearing to announce a deal that caught Ukrainian officials off guard in the absence of credible Russian guarantees.https://t.co/C1Wf6dA12k— Christopher Miller (@ChristopherJM) September 14, 2026 Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, sagði í morgun að hugmyndin um hlé á árásum á orkuinnviði væri góð. Verið væri að tala við Bandaríkjamenn um hana. Hann sagði þó einnig að rétta leiðin til að lækka olíuverð væri að fella niður allar refsiaðgerðir sem Rússar hafa verið beittir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Hann sagði að framleiðsla olíuafurða væri ekki stóra vandamálið heldur flutningur þeirra. Rússar hafa á undanförnum árum notað fjölda olíuflutningaskipa í svokölluðum „skuggaflota“ til að komast hjá refsiaðgerðum. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Þá sagði Peskóv að Úkraínumenn væru ekki líklegir til að tryggja öryggi olíuflutningaskipa. Ekki eingöngu rússneskra skipa heldur allra skipa.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Bensín og olía Hernaður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Sjá meira