Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 15:13 Sigfús Aðalsteinsson taldi utanríkisráðherra og starfsmenn utanríkisráðuneytisins hafa framið landráð með því að ræða við fulltrúa Evrópusambandsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Vísir/Lýður Valberg Úrskurðarnefnd kosningamála hafnaði kröfu fasteignasala um að ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður. Hún taldi kærandann ekki hafa bent á neina annmarka sem gætu leitt til ógildingar þrátt fyrir aragrúa raka í kæru.
Sigfús Aðalsteinsson, fasteignasali og oddviti framboðsins Okkar borgar í Reykjavík, kærði framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar í síðasta mánuði og krafðist þess að hún yrði ógild. Logi Kjartansson, lögmaður Sigfúsar og Þrastar Jónssonar, meðkæranda hans, tók saman aragrúa raka þeirra um hvernig undirbúningur og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar hefði verið ólögmæt að þeirra mati. Þeir héldu því meðal annars fram að utanríkisráðherra hefði ekki verið heimilt að leggja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna fram, að mikilvægum gögnum hefði verið haldið frá almenningi, aðildarviðræður væru ekki mögulegar án stjórnarskrárbreytingar og að upplýsingamiðlum utanríkisráðuneytisins og Ríkisútvarpsins hefði verið einhliða. Héldu kærendurnir því fram að utanríkisráðherra og einstakir starfsmenn ráðuneytisins gætu hafa framið landráð með undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Engar lagastoðir fyrir athugasemdunum Úrskurðarnefndin benti á að kosningalög gerðu enga kröfu um að tiltekinn ráðherra legði þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði fram. Ljóst væri að löglega hefði verið boðað til atkvæðagreiðslunnar þar sem Alþingi hefði samþykkt tillöguna. Varðandi meintar einhliða upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu þýddi ákvæði kosningalaga um að landskjörstjórn skyldi standa fyrir víðtækri kynningu á málefni sem væri borið undir þjóðaratkvæði ekki að öðrum stjórnvöldum væri óheimilt að miðla upplýsingum um það. Vísaði nefndin kærendum á Fjölmiðlanefnd ef þeir hefðu athugasemdir um hlutlægni og áreiðanleika Ríkisútvarpsins. „Að öðru leyti hafa ekki komið fram efnislegar athugasemdir við undirbúning og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar sjálfrar í kæru og ekkert hefur komið fram um að hnökrar hafi verið á þeirri framkvæmd.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira