Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Aron Guðmundsson skrifar 13. september 2026 15:50 Hjörvar og Peter Schmeichel fóru yfir stöðuna fyrir grannaslaginn mikilvæga Hjörvar Hafliðason ræddi við goðsögnina Peter Schmeichel, sem spilaði bæði með Manchester City og Manchester United á sínum ferli, fyrir grannaslag liðanna á Old Trafford í dag. „
Peter, við tökum þetta á ensku?“ sagði Hjörvar við Schmeichel er hann hóf viðtalið: „Já, auðvitað. Því ég tala ekki íslensku,“ svaraði Schmeichel. Hjörvar spurði Danann, sem vann allt sem hægt var að vinna með Manchester United á sínum ferli hvort það kæmi honum á óvart að Benjamin Šeško fengi ekki að byrja upp á topp hjá United í dag. „Nei, það kemur mér ekki á óvart því Benjamin kom mjög seint til baka,“ svaraði Schmeicel. „Fyrsta æfingin hans var daginn fyrir fyrsta leik tímabilsins. Þannig að hann þarf smá tíma, aðeins meira undirbúningstímabil. Hann fékk mjög góða spretti á fimmtudaginn gegn Sabah í Meistaradeildinni og í dag er hann á bekknum. Hann getur komið inn á. Hann getur komið inn á og haft áhrif á leikinn seinna í honum. Nei, ég er nokkuð. Ég var nokkurn veginn búinn að spá fyrir um þetta byrjunarlið. Það eina sem kom mér svolítið á óvart var að Luke Shaw er ekki að spila, en hann er ekki einu sinni á bekknum, svo hann hlýtur að vera meiddur.“ Nokkur orð um þetta Manchester City lið. Er þetta liðið sem getur veitt Arsenal samkeppni um deildartitilinn? „Ég held að þetta sé sá leikmannahópur af öllum hópum ensku úrvalsdeildarinnar sem hefur þá getu. Já, þeir hafa breytt leikstíl sínum svolítið. Þeir hafa skipt út mörgum leikmönnum og fengið inn öðruvísi leikmannatýpur, sem verður áhugavert. En það sem þeir hafa, þeir hafa. Þú horfir á bekkinn í dag. Breiddin í hópnum er ótrúleg. Svo ef honum tekst þetta, ef Enzo Maresca nær þessu rétt, þá gætu þeir klárlega veitt Arsenal samkeppni. En ég horfði aftur á Arsenal í gærkvöldi. Það er erfitt að sjá nokkurn vinna þá. Schmeichel þekkir Manchester slagina vel. „Manchester-slagurinn er ekki sögulega séð stærsti leikur sem Manchester United spilar. Það er alltaf Liverpool eða Leeds. Manchester City var ekki það afl sem það er í dag á þeim tíma sem ég spilaði. Nú er þetta öðruvísi. Mjög, mjög öðruvísi. Þessi leikur hefur mikla þýðingu fyrir íbúa Manchester. Svo auðvitað er mikilvægt hver getur montað sig í vinnunni á morgun, þessi í bláu eða þessi í rauðu.“ Grannaslagur Manchester United og Manchester City er nú sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester United Manchester City Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Sjá meira