Viðskipti innlent

NTV kaupir Dale Carnegie

Lovísa Arnardóttir skrifar
Tímamót hjá Dale Carnegie.
Tímamót hjá Dale Carnegie. Aðsend

NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi. Unnur Magnúsdóttir segir engan missa vinnuna og félögin verði rekin sem eins konar systurfélög undir sama eignarhaldi. Unnur keypti reksturinn árið 2006 en hefur starfað á vegum Dale Carnegie í 25 ár. Hún segir um mikil tímamót að ræða.

Unnur verður áfram ein af lykilmanneskjum í stjórnendateymi Dale Carnegie á Íslandi. Hún hefur í 25 ár gegnt lykilhlutverki í ráðgjöf, samskiptum og leiðtogaþjálfun fyrir viðskiptavini Dale Carnegie.

„Ég er gríðarlega spennt fyrir þessum nýja kafla sem fram undan er og hlakka til að eiga samtal við viðskiptavini okkar á breiðari grunni. Ég vona að með því getum við mætt þörfum þeirra enn betur og veitt þeim enn öflugri þjónustu,“ segir Unnur.

Jón Jósafat Björnsson verður áfram hjá Dale Carnegie sem sölustjóri fyrst um sinn en mun á næsta ári færa sig yfir í fagráð Dale Carnegie á Íslandi.

„Dale Carnegie á sér langa og farsæla sögu á Íslandi og við leggjum mikla áherslu á að byggja áfram á þeim sterka grunni sem fyrir er. Jafnframt sjáum við mikil tækifæri í því að nýta styrkleika NTV Promennt og Dale Carnegie þannig að félögin verði saman sterkari og geti boðið enn breiðari þjónustu,“ segir Skúli Gunnsteinsson, sem verður framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri NTV Promennt.

Heldur áfram sem sjálfstæð eining

Í tilkynningu um kaupin kemur fram að Dale Carnegie haldi áfram sem sjálfstæð rekstrareining og sjálfstætt vörumerki, en félögin fá tækifæri til að nýta styrkleika hvors annars og byggja upp enn öflugri þjónustu við stjórnendur, fyrirtæki og einstaklinga.

Þar kemur einnig fram að Dale Carnegie hefur verið starfandi á Íslandi í meira en 60 ár. NTV Promennt er á sínu 30. starfsári. Ár hvert nýti um 6.000 manns náms- og þjálfunartengda þjónustu félaganna tveggja.

„Með félögin undir sama eignarhaldi skapast tækifæri til að nýta þekkingu, innviði og styrkleika þeirra beggja, án þess að skerða sjálfstæði eða sérstöðu Dale Carnegie,“ segir í tilkynningu og að mikil samfella verði í starfsemi Dale Carnegie við kaupin. Allir ráðgjafar og þjálfarar félagsins verði áfram.


Tengdar fréttir

Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“

„Þetta er eins og taka til í geymslunni; henda út hlutum sem við viljum ekki nota og setja inn nýtt,“ segir Jón Jósafat Björnsson meðal annars um þau tuttugu atriði sem eru nefnd sérstaklega í leiðtogaþjálfun Dale Carnegie, sem unnið var í samvinnu við Marshcall Goldsmiths.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×