Innlent

Grjót á stærð við þvotta­vélar þar sem börn fara á leið í skóla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vegurinn um Kambaskriður.
Vegurinn um Kambaskriður. Vegagerðin

Hreinsa þurfti grjót af veginum um Kambaskriður austur af Breiðdalsvík í morgun. Íbúar hafa lýst yfir áhyggjum af veginum sem börnum er ekið eftir til og frá skóla á hverjum degi.

Austurfrétt greinir frá grjóthruninu og hefur eftir yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði að starfsmaður Vegagerðarinnar hafi komið að grjótinu í morgun sem hafi í framhaldi verið hreinsað af verktaka.

Hinrik Þór Einarsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, segir við Austurfrétt að tveir til þrír steinanna hafi verið á stærð við þvottavélar og aðrir sex á stærð við örbylgjuofna.

Á vef Vegagerðarinnar er varað við grjóthruni sem er sagt þekkt vandamál á svæðinu í haustrigningum.

Austurfrétt rifjar upp að í apríl hafi skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla sent frá sér opið bréf og krafist tafarlausra úrbóta á svæðinu. Kambaskriður eru hluti af veginum sem liggur milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar en kennsla fer til skiptis fram í bæjunum.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×