Viðskipti innlent

Her­mann fram­kvæmda­stjóri Fálkans Ísmars

Samúel Karl Ólason skrifar
Baldur Þórarinsson, Hermann Guðmundsson og Hrafn Hauksson.
Baldur Þórarinsson, Hermann Guðmundsson og Hrafn Hauksson.

Hermann Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars. Samkeppniseftirlitið gaf í sumar leyfi fyrir samruna fyrirtækisins við Kemi ehf en Hermann var fyrir framkvæmdastjóri Kemi.

Auk hans er búið að ráða þá Hrafn Hauksson sem fjármálastjóra en hann er einnig rekstarstjóri og staðgengill framkvæmdastjóra.

Í tilkynningu segir að Hrafn eigi langan feril að baki sem fjármálastjóri hjá Sól - Víking, Ölgerðinni, Emmessís og öðrum fyrirtækjum. Hann hafi einnig starfað sem ráðgajfi í hugbúnaðarverkefnum.

Sjá einnig: Kemi og Fálkinn Ísmar sam­einast

Þá hefur Baldur Þórarinsson verið ráðinn til Fálkans Ísmar og mun sinna sérstaklega sölu á nýjum búnaði sem ekki áður hefur fengist hjá félaginu.Baldur hefur langa reynslu af sölu og þjónustu vinnuvéla og vörubíla. Hann hefur starfað hjá Kraftvélum, Global tækjum auk Vinnuvéla og Ásafl ehf. Baldur hefur þegar tekið til starfa og hefur aðsetur á Dalvegi 10-14 í Kópavogi.

„Ákveðið hefur verið að styrkja enn frekar þjónustu við vinnuvélaeigendur og verktaka. Nú þegar er félagið að sinna þessum markaði í gegnum sölu á Trimble mælitækjum, GPS búnaði og fjarskiptum,“ segir Hermann Guðmundsson í áðurnefndri tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×