Handbolti

Kanalausir Eyja­menn unnu Suðurlandsslaginn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Dagur Arnarsson var markahæstur á vellinum í kvöld með níu mörk.
Dagur Arnarsson var markahæstur á vellinum í kvöld með níu mörk. vísir/Hulda Margrét

ÍBV vann þriggja marka sigur, 30-27, á Selfossi í 2. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld.

Bæði ÍBV og Selfoss voru stigalaus eftir fyrstu umferð Olís-deildarinnar og sóttust eftir að komast á blað í suðurlandsslagnum í Eyjum í kvöld.

Athygli vakti að ÍBV tilkynnti í dag um komu tveggja Bandaríkjamanna í leikmannahóp liðsins en hvorugur þeirra með í kvöld.

Leikurinn var jafn frá upphafi. Eyjamenn komust mest tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleiknum og voru skrefi á undan stærstan part. Fínn lokakafli Selfyssinga þýddi hins vegar að þeir leiddu 14-13 í hálfleik.

Selfyssingar leiddu með einu til tveimur mörkum fyrsta stundarfjórðung síðari hálfleiksins þegar Eyjamönnum tókst loks að jafna. Þá tókst heimamönnum að snúa taflinu við og leiddu með einu til tveimur mörkum það sem eftir lifði leiks.

Fjórar mínútur voru eftir þegar ÍBV komst í 27-24, en það var í fyrsta sinn sem munurinn varð meiri en tvö mörk.

Selfyssingum tókst ekki að brúa það bil og ÍBV vann 30-27 sigur. Eyjamenn eru því komnir á blað í deildinni en Selfoss leitar enn fyrstu stiganna.

Dagur Arnarsson var markahæstur á vellinum í kvöld með níu mörk fyrir ÍBV, þar af fjögur af vítalínunni. Hákon Garri Gestsson skoraði átta fyrir Selfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×