Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Andri Broddason skrifar 9. september 2026 10:31 Þrátt fyrir að hafa klippt hárið sitt þá heldur Erling Haaland áfram að skora. Vísir/getty/Mark Cosgrove Erling Haaland var á skotskónum fyrir Manchester City í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri á Porto í Meistaradeild Evrópu. Jamie Carragher er sannfærður um að hann verði besti markaskorari allra tíma.
Eftir að hafa skorað tvö mörk í leik gærkvöldsins varð Haaland þriðji markahæsti leikmaður í sögu Manchester City. Hann á þó langt í land til að ná metinu en Sergio Aguero er markahæsti leikmaður liðsins með 260 mörk en Haaland er enn bara með 167 mörk í 203 leikjum. Jamie Carragher sagði á CBS Sports að hann gæti orðið besti markaskorari allra tíma. "I just can't see Haaland not scoring 1,000 goals." 🤯@Carra23 on Erling Haaland's incredible numbers and whether he could become the greatest goalscorer ever ✨ pic.twitter.com/8hYJgEAZ6F— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) September 8, 2026 „Ég get ekki séð fyrir mér að Haaland skori ekki þúsund mörk eða verði besti markaskorari allra tíma. Ég hef ekki séð annan eins leikmann varðandi mörk því hann skorar í hverjum leik. Hann gerir þetta svo oft að þetta verður ekki merkilegt,“ sagði Jamie Carragher um frammistöðu Erling Haaland. „Hann skoraði tvö mörk á útivelli í Meistaradeild Evrópu. Ef einhver annar framherji gerir það er það frábært kvöld en fyrir Haaland er þetta bara venjulegt kvöld. Ég sé ekki hvernig hann getur ekki orðið markahæsti leikmaður sem við höfum séð nokkurn tímann.“ Erling Haaland hefur nú skorað 59 mörk í Meistaradeild Evrópu í 59 leikjum fyrir bæði Manchester City og Borussia Dortmund. Sömuleiðis byrjar hann vel á tímabilinu þar sem hann er búinn að skora fimm mörk í fimm leikjum.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester City Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Sport Fleiri fréttir Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sjá meira