Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Smári Jökull Jónsson skrifar 9. september 2026 19:02 Niðurstöður nýjustu PISA-prófanna hafa nú verið opinberaðar. Vísir/Anton Brink Ísland er á meðal neðstu PISA-þjóða þegar tekin er saman tölfræði um fylgni á milli útgjalda ríkisins til menntamála og stigafjölda í PISA-rannsókninni. Útgjöld til menntamála á Íslandi eru á meðal þeirra mestu í heimi á hvern nemanda en peningarnir virðast ekki nýtast kerfinu til að búa til afburðanemendur.
Eins og greint var frá í gær hefur íslenskum nemendum aldrei gengið jafn illa í PISA-prófinu og nú. Niðurstöðurnar, sem eru úr könnunum sem lagðar voru fyrir nemendur þáverandi 10. bekkjar í mars og apríl 2025, voru gerðar opinberar í gær og fara tölur íslenskra nemenda niður á við í öllum þremur kjarnafögunum, náttúruvísindum, stærðfræði og lesskilningi. Stærðfræði Lesskilningur Náttúruvísindi Ísland Meðaltal OECD Niðurstöður PISA eru settar í ýmis konar samhengi í skýrslum samtakanna sem telja í heildina mörg hundruð blaðsíður og eru afar ítarlegar. Meðal niðurstaðna er fylgni á milli útgjalda til menntamála og árangurs nemenda. Þar er Ísland í þriðja neðsta sæti á lista þeirra sjötíu og þriggja þjóða þegar tekin er saman tölfræði um fylgni á milli útgjalda og stigafjölda í náttúruvísindahluta PISA-rannsóknarinnar. Peningarnir skila sér ekki í góðum árangri Á grafi sem birtist í skýrslu PISA sést skýrt að Ísland fer hátt á kvarða yfir lönd með hæstu útgjöldin á hvern nemanda í grunnskóla og er töluvert langt fyrir neðan meðaltalslínu um fylgni á milli útgjalda og stigaskors. Tölurnar miða við heildarútgjöld á grunnskólagöngu nemenda. Grafið sem sýnir fylgni á milli útgjalda á hvern nemanda yfir skólagönguna og stiga í náttúruvísindum í nýjustu PISA-könnuninni.PISA Alls eru útgjöld íslenska ríkisins 194.678 dollarar á hvern nemanda yfir skólagönguna, þau fimmtu hæstu af löndunum sjötíu og þremur. sem tölfræðin nær til. Lúxemborg eyðir mest eða 288.521 dollara á hvern nemanda en Lúxemborg, Sviss og Suður-Kórea eru einu löndin sem eyða yfir tvö hundruð þúsund dollurum á hvern nemanda samkvæmt skýrslu PISA. Kórea er hins vegar í sjötta sæti á lista yfir lönd sem fengu flest stig í náttúruvísindahluta PISA-könnunarinnar. Ef útgjöldin eru borin saman við stigafjölda í náttúruvísindum í nýjasta PISA-prófinu sést að Ísland fær þriðju fæstu stigin miðað við útgjöld. Íslenskir nemendur fá 2,27 stig fyrir hverja þúsund dollara sem lagðir eru út og aðeins Sviss með 2,14 stig og Lúxemborg með 1,64 stig fyrir hverja þúsund dollara eru neðar á listanum. PISA-stig í náttúruvísindum á hverja 1.000 dollara í útgjöldum Við þessa útreikninga var aðeins horft til landa þar sem útgjöldin á hvern nemanda voru yfir 100 þúsund dollurum á skólagöngunni. Af þeim löndum fær Litháen mest fyrir peningana eða 4,85 stig á hverja þúsund dollara. Bæði Danmörk og Noregur fá minna en þrjú PISA-stig á hverja þúsund dollara sem lagðir eru út og Svíþjóð og Finnland eru þar rétt fyrir ofan á listanum. Útgjöld til menntamála á Íslandi drógust saman Í skýrslunni er tekið fram að mismunandi efnhags- og félagslegar aðstæður landa geti haft áhrif á árangur nemenda. Velmegun sumra landa geri þeim kleift að eyða meira í menntun á meðan önnur lönd hafa úr minni fjármunum að moða. Lönd með meiri þjóðartekjur hafa tilhneigingu til að skora hærra í PISA-prófunum. Engu að síður þýða meiri útgjöld ekki sjálfkrafa hærri einkunnir og í skýrslunni er tekið fram að útgjöldunum þurfi að fylgja skilvirk úthlutun og nýting fjármagns ef það á að skila sér í framförum í menntun. Samkvæmt skýrslu OECD frá því á síðasta ári segir að framlög til menntamála séu meiri á Íslandi að meðaltali en víða annars staðar. Útgjöld Íslands nemi 5,6 prósentum af vergri landsframleiðslu samanborið við 4,7 prósent að meðaltali hjá OECD. Þá hafi kostnaður við hvern nemanda aukist að meðaltali innan OECD en fjárframlög að raunvirði minnkað. Á Íslandi drógust útgjöld til menntamála saman um 1,3 prósentustig, úr 13,1 prósenti í 11,8 prósent á árunum 2015 til 2022.
Skóla- og menntamál Grunnskólar PISA-könnun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira