Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar 8. september 2026 14:30 Nú er sumri senn lokið, börnin okkar byrjuð í skólanum, tómstundirnar komnar í vetrargírinn og lífið komið í fastari skorður. Öll börn eiga rétt á menntun þar sem þau geta þroskast á eigin forsendum og ræktað hæfileika sína. Börn eiga einnig rétt á hvíld, tómstundum, leikjum og skemmtunum sem hæfa aldri þeirra og þroska. Um þessi réttindi er kveðið á um í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið lögfestur á Íslandi. Þar er jafnframt kveðið á um að ekki megi mismuna börnum hvað þessi réttindi varðar vegna stöðu þeirra eða stöðu foreldra þeirra. Skólinn á að tryggja að börn hljóti menntun, en hver á að tryggja að öll börn geti notið tómstunda? Sveitarfélög og tómstundafélög hafa boðið upp á fjölbreyttar tómstundir, en ólíkt skólanum sem er gjaldfrjáls kosta tómstundir dágóðan skilding. Sveitarfélög veita flest tómstundastyrki, sem þó ekki duga fyrir útgjöldum öllum, sérstökum fatnaði til tómstunda og fleiru. Það gerir það að verkum að börn sem eiga að hafa jöfn tækifæri til þátttöku og tómstundaiðju, hafa það ekki. Börn hefja oftast iðkun tómstunda vegna áhuga, til að fá útrás fyrir orku og tjáningu og til að vera í góðum félagsskap. Í tómstundum eiga börn að fá að rækta hæfileika sína, kynnast styrkleikum sínum og draumum. Þó er það ekki þannig að öll börn hafi tækifæri til að stunda tómstundir. Það er sannarlega ekki tryggt. Segja má að mismunun meðal barna megi helst sjá í ójöfnum tækifærum þeirra til tómstundaiðkunar. Auk kostnaðar, eru tómstundir ekki aðgengilegar öllum, svo sem vegna fjarlægðar frá heimili eða atgervis barns eins og fötlunar. AMSIS leggur áherslu á að öllum hindrunum sem koma í veg fyrir að barn geti stundað tómstundir sé rutt úr vegi. Til þess að svo megi verða er mikilvægt að gerð sé tómstundastefna þar sem kveðið er á um slíkt. Við gerð tómstundastefnu þurfa stjórnvöld í samstarfi við tómstundafélög að meta við hvaða aldur er æskilegt að barn hefji tómstundaiðkun og þá hvers konar, hve oft og hve lengi í senn út frá velferð barnsins. Jafnframt um keppnir og ferðalög. Börn vinna oft langan vinnudag, oft mun lengri en þeir sem eru fullorðnir. Samþætta þarf tómstundir inn í vinnudag barnsins ekki síst þeirra yngstu. AMSIS hvetur stjórnvöld til að setja sér tómstundastefnu þar sem tryggt er að öll börn geti notið tómstunda óhað efnahag eða öðrum aðstæðum. Tómstundir eiga að vera allra. AMSIS eru frjáls félagsamtök sem vinna að mannréttindum. AMSIS hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi í öllu starfi og vinna gegn fátækt og ójöfnuði og þar með að betra samfélagi. Höfundur er í stjórn AMSIS Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Íþróttir barna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar