Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Sindri Sverrisson skrifar 7. september 2026 16:01 Tobias Aagaard var ráðinn til að starfa fyrir danska landsliðið á síðasta stórmóti, þegar Danir unnu EM. Nordsjælland Tobias Aagaard hefur sagt starfi sínu lausu hjá danska handknattleikssambandinu í kjölfar þess að hann var rekinn frá Nordsjælland fyrir óviðeigandi skilaboð til ungra leikmanna.
Aagaard starfaði sem myndbandsgreinandi fyrir danska karlalandsliðið sem varð Evrópumeistari í byrjun þessa árs og var auk þess yfir hæfileikamótun hjá danska sambandinu. Nú hefur hann sagt upp, hálfum mánuði eftir að hafa verið rekinn frá Nordsjælland þar sem hann var þjálfari meistaraflokks karla um skamma hríð eftir að hafa haft umsjón með yngri flokkum félagsins. Hinn 28 ára gamli Aagaard náði aðeins að vera þjálfari karlaliðs Nordsjælland í 17 daga áður en hann var rekinn, eftir að upp komst um „óásættanleg“ samskipti við unga leikmenn sem samræmdust ekki ábyrgð og gildum félagsins, að því er sagði í yfirlýsingu. „Hjá Nordsjælland Håndbold eiga þjálfarar okkar að vera bæði fyrirmyndir og trúnaðarmenn. Það á ekki síst við í starfi með ungu leikmönnunum okkar. Að okkar mati hefur þeirri ábyrgð ekki verið sinnt á þann hátt sem við getum sætt okkur við og því lýkur samstarfinu,“ sagði Kim Scheuer Nielsen, framkvæmdastjóri Nordsjælland Håndbold, í síðasta mánuði. Danski miðillinn B.T. segir að forráðamenn Nordsjælland hafi ekki viljað útskýra ákvörðun sína frekar en sagt í yfirlýsingu: „Félagið mun halda áfram viðræðum við viðeigandi leikmenn og foreldra og jafnframt fara yfir eigin verklagsreglur, viðmiðunarreglur og áframhaldandi leiðsögn þjálfara félagsins.“
Danski handboltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira