Erlent

Minnst fimm látnir eftir flug­slys í Flórída

Eiður Þór Árnason skrifar
Þotan liggur á Miami International Airport í Flórída.
Þotan liggur á Miami International Airport í Flórída. Ap/David Fischer

Minnst fimm eru látnir eftir flugslys í Flórída-ríki í Bandaríkjunum þar sem flugvél á vegum netverslunarinnar Amazon fór út af flugbraut og lenti á bifreiðum utan hennar. Vélin var á leið frá San Juan í Púertó Ríkó.

Bandarísk flugmálayfirvöld segja að Boeing 767-þotan hafi farið út af flugbrautinni um klukkan 14 að staðartíma, eða um 18 á íslenskum tíma. Sky News greinir frá þessu. Hlé hefur verið gert á annarri umferð á flugvöllinn. Um sextíu slökkviliðsmenn eru sagðir vera á vettvangi.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×