Innlent

Fylgdarakstur um Hval­fjarðar­göng að nætur­lagi í næstu viku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hvalfjarðargöng verða lokuð að næturlagi. 
Hvalfjarðargöng verða lokuð að næturlagi.  Vísir/Vilhelm

Unnið verður við þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7., 8. og 9. september, frá klukkan 23:00 til 06:30. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Götusópar, vatnsbílar og körfubílar verða að störfum í göngunum og eru vegfarendur beðnir um að sýna þeim sérstaka aðgát.

Fylgdarakstur verður um göngin meðan á vinnu stendur. Í tilkynningu eru vegfarendur hvattir til að aka varlega og fylgja leiðbeiningum starfsfólks. Við þrif geti myndast mikil hálka í göngunum og því sé sérstaklega mikilvægt að aka með gát og taka alls ekki fram úr ökutækjum sem stýra fylgdarakstri.


Tengdar fréttir

Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu

Löng helgi er fram undan á hvítasunnu og er helgin allajafna vinsæl helgi til ferðalaga. Vegagerðin bendir á á vefsíðu sinni á að lokanir verða í Hvalfjarðargöngum um helgina eins og síðustu helgar.

Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×