Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði Kolbrún Halldórsdóttir, Helgi Gunnarsson, Helga Rósa Másdóttir, Steinunn Þórðardóttir og Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifa 2. september 2026 17:02 Meginmarkmið í kjarabaráttu stéttarfélaga háskólamenntaðra hefur lengi verið skýrt: Háskólamenntun á að borga sig. Hún á að skila sér í sanngjörnum launum, góðum lífskjörum og félagslegu öryggi. Ný rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði sýnir hins vegar skýrt að margt háskólamenntað fólk býr ekki við það fjárhagslega öryggi og þau lífskjör sem ætla mætti að menntun þess tryggði. Rannsóknin var unnin að frumkvæði BHM og sex stéttarfélaga utan bandalagsins: Verkfræðingafélags Íslands, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélags Íslands, Lyfjafræðingafélags Íslands, Stéttarfélags tölvunarfræðinga og Byggingafræðingafélags Íslands. Svör bárust frá 9.646 félagsmönnum úr 29.646 manna úrtaki. Svarhlutfallið var því 33% og niðurstöðurnar gefa mikilvæga og trausta mynd af stöðu háskólamenntaðs launafólks á húsnæðismarkaði. Námslánin þrengja fjárhagslegt svigrúm Ein skýrasta niðurstaða rannsóknarinnar er samspil húsnæðiskostnaðar og afborgana af námslánum. Meðal þeirra sem búa í eigin húsnæði með húsnæðisláni en greiða ekki jafnframt af námslánum mælast greiðsluerfiðleikar á bilinu 16–19%. Þegar afborganir námslána bætast við húsnæðislánin hækkar hlutfall þeirra sem eiga í erfiðleikum með að standa undir mánaðarlegum húsnæðiskostnaði í 28%. Námslán reynast þannig sjálfstæður og þungur áhrifaþáttur á fjárhagsstöðu heimila. Þau skerða ráðstöfunartekjur og draga úr fjárhagslegu svigrúmi, ekki síst hjá yngra fólki á fyrstu árum starfsævinnar, þegar jafnframt reynir hvað mest á fjárhag vegna húsnæðiskaupa og fjölskyldumyndunar. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að ráðist verði í heildarendurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna. Námslánakerfið á að stuðla að jöfnum tækifærum til menntunar. Það má ekki verða þess valdandi að fólk sem hefur fjárfest í menntun sinni standi verr að vígi þegar kemur að því að koma sér upp öruggu húsnæði að námi loknu. Vaxandi ójöfnuður milli kynslóða Þótt 74% svarenda búi í eigin húsnæði með láni og 15% í skuldlausu húsnæði kemur skýr kynslóðamunur í ljós þegar skoðað er hvernig fólk hefur komist inn á fasteignamarkaðinn. 62% þeirra sem eru 34 ára og yngri þurftu fjárhagslega aðstoð, einkum frá fjölskyldu, til að geta keypt fasteign. Til samanburðar fengu aðeins 20% þeirra sem eru 55 ára og eldri slíkan stuðning þegar þau keyptu húsnæði. Þessi þróun vekur áleitnar spurningar um jöfn tækifæri. Efnahagur og eignastaða foreldra virðast skipta sífellt meira máli fyrir möguleika ungs háskólafólks til að eignast húsnæði. Af þeim sem höfðu reynt að kaupa fasteign án árangurs sögðu 68% skort á eigin fé vera meiri hindrun en erfiðleika við að standast greiðslumat. Húsnæðisöryggi á ekki að ráðast af efnahag foreldra eða möguleikum fjölskyldunnar til að leggja fram fé til fasteignakaupa. Ef aðgangur að eignarhúsnæði verður í auknum mæli háður slíkum stuðningi eykst hættan á að ójöfnuður flytjist milli kynslóða og festist enn frekar í sessi. Aðgerðir stjórnvalda þurfa því að stuðla að raunhæfum möguleikum ungs fólks til eignamyndunar og réttlátari forsendum til fyrstu húsnæðiskaupa. Aukið vinnuálag er ekki lausn á húsnæðisvandanum Rannsóknin leiðir jafnframt í ljós að um 37% svarenda starfa í meira en 100% starfshlutfalli. Sú niðurstaða vekur spurningar um hvort hluti háskólamenntaðs launafólks þurfi að reiða sig á yfirvinnu eða aukastörf til að standa undir húsnæðiskostnaði, námslánum og öðrum útgjöldum heimilisins. Slíkt getur ekki verið varanleg lausn. Langvarandi vinnuálag skerðir möguleika fólks til að samræma atvinnu- og einkalíf og getur haft neikvæð áhrif á starfsumhverfi, heilsu og lífsgæði. Eðlileg dagvinnulaun eiga að skapa fólki raunhæfan grundvöll til framfærslu og þátttöku í samfélaginu. Gögnin sýna jafnframt að þótt aðeins 5% háskólafólks séu á almennum leigumarkaði eru leigjendur 40 ára og eldri mun líklegri til að vera þar til lengri tíma. 37% þeirra hafa verið lengur en fimm ár á leigumarkaði, samanborið við 18% í yngri hópnum. Fyrir þann hóp sem kemst ekki inn á fasteignamarkaðinn getur leiguhúsnæði því orðið langtímastaða fremur en tímabundið úrræði. Heildarsýn og raunverulegt samráð Niðurstöður Félagsvísindastofnunar sýna hversu náið samhengi er milli launakjara, námslána, húsnæðiskostnaðar og félagslegs öryggis. Ef tryggja á að háskólamenntun skili sér í bættum lífskjörum dugar því ekki að horfa á einstaka þætti eina og sér, heldur á heildarmyndina og samspil þeirra þátta sem móta lífskjör fólks. Virði menntunar birtist ekki aðeins á launaseðlinum. Það birtist einnig í möguleikum fólks til að eignast húsnæði, byggja upp fjárhagslegt öryggi, stofna fjölskyldu og njóta eðlilegs jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Þess vegna er brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins eigi raunverulegt og virkt samráð um þessi mál. Húsnæðismál, námslánakerfi og launakjör verða ekki aðskilin hvert frá öðru þegar lagt er mat á stöðu háskólamenntaðs launafólks. Markmiðið hlýtur að vera samfélag þar sem menntun skapar raunveruleg tækifæri til bættra lífskjara óháð aldri, fjölskyldubakgrunni eða efnahag foreldra. Nánar má lesa um skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um stöðu háskólafólks á húsnæðismarkaði. Skýrslan Árangur eða afturför? Áhrif og afleiðingar nýrra laga um Menntasjóð námsmanna. Höfundar: Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM – Bandalags háskólamanna Helgi Gunnarsson formaður Verkfræðingafélags Íslands Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Helga Rósa Másdóttir Steinunn Þórðardóttir Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar