Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. ágúst 2026 14:40 Valgeir Þór Jakobsson, formaður Samfés. vísir/bjarni Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, og Fagfrí, landssamtök um fagþróun frístundaheimila, fordæma breytingar borgarstjórnar Reykjavíkur sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna.
Fyrr í vikunni var tæplega níutíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar sagt upp og frístundamiðstöðvar, sem sjá um utanhald frístundaheimila, margar hverjar lagðar niður. „Uppsagnir á lykilstjórnendum með áratuga reynslu í stoðþjónustu við frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar í borginni er gríðarlegt högg fyrir stjórnendur á vettvangi og málaflokkinn í heild sinni. Ákvörðun borgarstjórnar að leggja niður frístundamiðstöðvarnar gerir lítið úr yfir 25 árum af uppbyggingu og þróun frístundastarfs sem litið hefur verið til sem fyrirmyndarstarfs um allt land, sem og erlendis,“ segir í yfirlýsingu sem birt var á Facebook-síðu Samfésar. Samtökin segja að breytingarnar muni óhjákvæmilega færa stoðþjónustu við frístundaheimili og félagsmiðstöðvar fjær vettvangi. Stjórnendurnir muni þar með eiga erfiðara með að sækja faglegt bakland og stuðning í sínu starfi. Spyrja hvað verði um metnaðarfullt fagstarf í þágu barna Samtökin lýsa því saman yfir verulegum áhyggjum af stöðu frístundaheimila og félagsmiðstöðva sem fyrsta stigs þjónustuveitenda í farsældarlögum. „Sú einstaklingsmiðaða þjónusta sem börn og fjölskyldur fengu áður frá skóla- og frístundasviði er nú færð á Velferðarsvið. Með því lengjast allar boðleiðir fyrir fagfólk í frístundaþjónustu.“ Einnig séu mikil vonbrigði með skort á samráði við sérfræðinga á vettvangi félagsmiðstöðva, frístundaheimila og frístundamiðstöðva við breytingarnar. „Sá hópur sem hefur treyst á örugga höfn í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum borgarinnar getur enn sótt starfið. Eftir stendur sú spurning hvort starfsfólk hafi möguleika á að sinna sama metnaðarfulla fagstarfi fyrir börnin og fjölskyldurnar í hverfunum án þess baklands sem hvarf við þessar breytingar?“ spyrja þau. Frístundamiðstöðvarnar hafi staðið fyrir fjölbreyttum verkefnum sem hvergi sé minnst á í tillögu borgarstjórnarinnar. Þar með er starfsemi fyrir eldri ungmenni, hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar og 16+ starf Miðbergs.
Frístund barna Börn og uppeldi Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira