Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 28. ágúst 2026 21:02 Flestir sem fréttastofa ræddi við voru búnir að gera upp hug sinn en gerðu athugasemdir við umræðuna í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. vísir Allir þeir sem fréttastofa ræddi við á förnum vegi í dag voru sammála um að umræðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði ekki verið nægilega málefnaleg og erfitt að treysta á réttar upplýsingar. Flestir voru þó búnir að gera upp hug sinn.
Finnst þér þú hafa fengið nægar upplýsingar til að geta myndað þér skoðun? „Nei ég get ekki alveg sagt það. Báðar hliðar eru meira að rífast en margt annað þannig ég geri ráð fyrir að ég komi til með að skila auðum seðli á morgun, mæti engu að síður á kjörstað,“ sagði Garðar Hólm. Hvernig finnst ykkur umræðan hafa verið í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu, hefur hún verið málefnaleg eða mikið um upplýsingaóreiðu? „Bæði og, þetta er hápólitískt,“ segir Sigríður. „Mér finnst hún bara ruglingsleg, mjög ruglingsleg. Og erfitt fyrir fólk sem er ekki búið að taka ákvörðun er örugglega mjög erfitt að ákveða sig út af þessum áróðri sem er í gangi. Mjög óákveðnir margir í kringum okkur, þetta er að rugla það svolítið,“ segir Steinþór Steinþórsson. „Hún er bara á svo lágu plani og hundléleg. Ég er orðinn brjálaður í skapinu að hlusta á þetta, þetta er svo lélegt. Fólk í landinu hefur sjálfstæða ákvörðun um að kjósa já eða nei og það á bara að leyfa fólki að ákveða það í friði,“ segir Rafn. Þannig hún hefði getað verið málefnalegri? „Miklu, þetta er bara lélegt.“ „Ég hef ekki fylgst mikið með en það hefur verið mikill hávaði og mörgu haldið fram sem kannski þolir ekki nánari skoðun,“ segir Einar Haukur. „Mér finnst þetta allt eitthvað svo dauflegt og erfitt að greina á milli. Svo segi ég eins og fólk sagði í gamla daga: Það er sami rassinn undir þeim öllum,“ segir Pétur Ingólfsson.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira