Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar 26. ágúst 2026 14:10 Undanfarin misseri hefur eftirspurn eftir raforku fyrir gagnaver á Íslandi aukist mjög. Drifkrafturinn er fyrst og fremst ör vöxtur gervigreindar og svokallaðra HPC-útreikninga, þar sem gríðarlegt reikniafl þarf á skömmum tíma. Þetta er annars konar starfsemi en rafmyntagröfturinn sem hefur verið áberandi í íslenskum gagnaverum. Rafmyntagröftur var að jafnaði stöðugt álag og þoldi tímabundnar takmarkanir betur, en AI-vinnsla getur verið mun sveiflukenndari. Fyrir lítið raforkukerfi eins og hið íslenska getur það skapað umtalsverðar áskoranir. Verne, sem rekur stórt gagnaver á Ásbrú, kynnti nýlega áform um nýtt 120 MW gagnaver við hlið núverandi starfsemi. Byggingarreiturinn verður um 20.000 fermetrar og stefnt er að gangsetningu um mitt ár 2028. Á íslenskan mælikvarða er þetta gríðarstór framkvæmd með metnaðarfullam tímaramma. Þegar litið er til þess sem nú er að gerast erlendis verður hún þó æði smá í samanburði. 1 Risavaxinn markaður Í aprílhefti IEEE Spectrum var fjallað um ótrúlega hraða uppbyggingu gagnavera í Bandaríkjunum. Þar er meðal annars tekið fyrir Hyperion, nýtt gagnaver Meta í Louisiana. Þegar það verður fullbyggt á næsta áratug er gert ráð fyrir um 5 GW aflnotkun (1 GW=1000MW). Það er meira en tvöfaldur núverandi afltoppur Íslands – eru þá talin með öll heimili, fyrirtæki og stóriðja samanlagt. Áætlað er að Hyperion verði í 11 stórum byggingum, hver með aflþörf að stærðargráðunni 500 MW. Til samanburðar er álver Alcoa á Reyðarfirði rúmlega 500 MW. Ein bygging í þessu gagnaveri yrði því álíka stór raforkunotandi og eitt stærsta iðnfyrirtæki Íslands. Allur gagnaverageirinn í Bandaríkjunum notaði um 8 GW árið 2014, en nú eru einstök ný verkefni farin að nálgast eða fara yfir 1 GW. AI-byltingin hefur því ekki aðeins breytt því hvað tölvur geta gert heldur líka umfangi innviðanna sem þarf til að knýja þær. 2 Meira afl á minna plássi Tæknin inni í gagnaverunum þróast jafnhratt. Nútíma AI-gagnaver nota svokallað rekka-kerfi (skápa-kerfi) eins og Nvidia GB200 NVL72, sem taka einn gagnaversrekka. Hver rekki inniheldur 72 GPU-örgjörva, 36 CPU-örgjörva og allt að 13,4 terabæti af GPU-minni og vegur um 1,5 tonn. Hver skápur er 60 cm á breidd og 1,2 m á dýpt og 2,2 m á hæðina. Aflþörfin fer vel yfir 100 kW og í sumum tilvikum um 250 kW. Næstu kynslóðir eru sagðar stefna enn hærra og innan fáeinna ára gæti einstakur rekki nálgast 1 MW. Það er erfitt að setja slíka tölu í samhengi. Einn gagnaversrekki (tölvuskápur) tekur aðeins lítið gólfpláss, en ef aflnotkun hans nálgast 1 MW gætu tveir slíkir rekkar notað svipað afl og Stykkishólmur á álagstíma. Þarna felst ein af stærstu breytingunum í gagnaverabransanum: sífellt meira reikniafl er þjappað inn á minna rými, með gríðarlegum kröfum til raforkuafhendingar og kælingar. Á sama tíma hefur byggingarhraðinn aukist. Fjárfestar sem áður sættu sig við um 30 mánaða framkvæmdatíma vilja nú í sumum tilvikum sjá gagnaver tilbúin á um 12 mánuðum. Slíkum hraða fylgir auðvitað gífurlegt fjármagn. Samkvæmt IEEE Spectrum námu fjárfestingar í nýjum gagnaverum í Bandaríkjunum um 60 milljörðum Bandaríkjadala árið 2025. Hyperion-verkefni Meta eitt og sér er metið á um 10 milljarða dala, eða rúmlega 1.200 milljarða íslenskra króna. Heildartekjur ríkissjóðs voru áætlaðar um 1.421 miljarðar árið 2025. 3 Orkan er lykilatriði Mesta áskorunin við þessa þróun er þó orkan. Fyrsti hluti Hyperion þarf um 2,3 GW og fyrirhugað er að byggja þrjú gasorkuver til að knýja þann hluta. Þar birtist stærsti munurinn á Íslandi og mörgum samkeppnislöndum okkar. Hér er raforkukerfið nær alfarið byggt á endurnýjanlegri orku, en víða erlendis kallar vöxtur gagnavera á nýja raforkuframleiðslu úr jarðefnaeldsneyti. Þessi sprenging í gagnaverauppbyggingu hefur líka áhrif langt út fyrir geirann sjálfan. Eftirspurn eftir spennum, rofabúnaði, raforkumælum, kælibúnaði og byggingarefni hefur aukist hratt. Verð hefur hækkað og afhendingartímar lengst. Þess verður vart hér á landi jafnvel í verkefnum sem hafa ekkert með gagnaver að gera. Bið eftir stórum aflspennum getur nú verið tvö ár og jafnvel einfaldari rafbúnaður getur haft óvenjulega langan afhendingartíma. 4 Frá tortryggni til eftirspurnar Undirritaður kynntist þessum geira fyrst fyrir alvöru á tækniráðstefnu í London í september 2008. Þá gekk illa að sannfæra erlenda aðila um að Ísland væri álitlegur staður fyrir gagnaver. Verne var meðal þeirra fáu sem sýndu hugmyndinni verulegan áhuga. Tímasetningin var heldur ekki sú heppilegasta, því á meðan við vorum á ráðstefnunni riðaði íslenska bankakerfið til falls. Nokkrum árum síðar breyttist myndin. Gagnaver Advania, síðar atNorth, hóf rekstur á Fitjum og vöxtur Verne hélt áfram. Rafmyntagröftur ýtti undir uppbygginguna um tíma, en ekki síður varð til mikilvæg reynsla og trúverðugleiki. Sýnt var fram á að hægt væri að byggja og reka stór gagnaver á Íslandi með góðum árangri. Nú er staðan nánast öfug við árið 2008. Í stað þess að þurfa að sannfæra fjárfesta um Ísland þurfa íslensk orkufyrirtæki að velja úr fjölda aðila sem vilja kaupa mikið magn raforku. Gervigreindin hefur síðan fært markaðinn yfir á alveg nýtt stig. Þetta er ekki sjálfgefið tækifæri. Gagnaver keppa um sömu raforku, land, flutningsgetu og búnað og önnur starfsemi og geta sett nýjar kröfur á raforkukerfið. En þau geta um leið skapað verðmæta hátæknistarfsemi, útflutningstekjur. Samkeppnisforskot Íslands byggir á endurnýjanlegri raforku og köldu loftslagi. Íslensk stjórnvöld hafa að mínu mati lengi verið fremur viðbregðin (reactive) en framsýn (proactive) gagnvart þessum geira. Regluverkið hefur að hluta þróast eftir að atvinnugreinin sjálf hefur bent á vandamál, til dæmis varðandi skattalega meðferð alþjóðlegrar gagnavinnslu. Í samkeppni milli landa geta slík atriði skipt miklu. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, hefur bent á mikilvægi þess að stjórnvöld horfi markvisst til þessa geira. Það er ástæða til að taka undir það. Ísland hefur á tæpum tveimur áratugum farið úr því að þurfa að selja hugmyndina um gagnaver til þess að vera eftirsótt staðsetning fyrir þau. Spurningin er því ekki lengur hvort áhugi sé á Íslandi. Spurningin er hvernig við viljum nýta hann – og hvort við höfum innviði, stefnu og regluverk til að gera það skynsamlega. Höldum athyglinni eins og Hilmar orðar það svo ágætlega. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gagnaver Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar