Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar 23. ágúst 2026 08:00 Kosningarnar 29. ágúst snúast að mínu mati um miklu meira en það eitt hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Stundum finnst mér umræðan hjá sumum minna á skammtímaupphrópanirnar í kringum Brexit, þar sem langtímahagsmunir þjóðarinnar fengu ekki alltaf þá virðingu sem þeir áttu skilið, eins og síðar hefur komið í ljós. Undir liggur miklu stærri efnahagsleg ákvörðun: Viljum við halda opinni leið út úr hávaxta- og áhættukerfi krónunnar, sem ég tel stærsta efnahagsvandamál þjóðarinnar, og í átt að evrunni, eða loka þeirri leið og búa áfram við krónuna næstu áratugina? Fyrir mér snýst þetta ekki aðeins um vexti, verðbólgu og gengisáhættu. Þetta snýst um áhættustjórnun íslenska þjóðarbúsins til langs tíma, sem nánast ekkert hefur verið rætt um. Ef niðurstaðan verður nei getur sú ákvörðun í reynd mótað peningakerfi heillar kynslóðar Íslendinga, með háum vöxtum og mikilli áhættu. Nei getur þýtt 20–30 ár í viðbót innan krónunnar Það kann að virðast langt að tala um 30 ár, en sagan segir okkur að slíkt er alls ekki óraunhæft. Noregur hafnaði ESB-aðild árið 1994 og meira en þrír áratugir eru liðnir án annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild. Slíkar ákvarðanir geta því mótað stefnu ríkja í áratugi. Ef niðurstaðan verður nei 29. ágúst er fyllilega raunhæft að Ísland verði áfram innan krónukerfisins næstu 20–30 árin, jafnvel lengur. Og þar liggur stærsta áhættan að mínu mati. Ef við værum aðeins að velja krónuna til eins eða tveggja ára væri áhættan allt önnur. En 30 ár eru heil kynslóð. Á þeim tíma munu koma margar hagsveiflur og að öllum líkindum fleiri en eitt stórt ytra áfall. Alþjóðlegar fjármálakreppur, stríð, farsóttir, náttúruhamfarir og áföll í útflutningsgreinum eru ekki fræðilegir möguleikar. Sagan segir okkur að slíkir atburðir koma aftur. Til viðbótar er sú áhætta að fari Ísland ekki í viðræður nú gæti Noregur síðar gert slíkt. Ef EES-samningurinn félli og Noregur væri þegar orðinn aðili að ESB gæti staða Íslands orðið mun erfiðari þegar kæmi að framtíðarviðræðum. Með krónuna sem gjaldmiðil verður gjaldmiðilsáhættan áfram til staðar vegna smæðar hennar. Eitt áfall getur orðið að gengisáfalli, verðbólguáfalli, vaxtaáfalli og að lokum skuldaáfalli, þótt það yrði ekki eins stórt og 2008. Því lengur sem þjóðin er bundin þessu kerfi, þeim mun meiri verður uppsöfnuð áhætta. Vextir inna krónunnar mun hærri en innan evrunnar Innan krónu hafa raunvextir húsnæðislán verið tæp 5% hærri en innan evrunnar og nafnvextir tæp 8% hærri sl. 10 og 22 ár. Tökum einfalt dæmi. Fjölskylda tekur 60 milljóna króna óverðtryggt jafngreiðslulán til 40 ára. Við 3,3% vexti innan evrunnar er greiðslan um 225 þúsund krónur á mánuði. Við 8,3% vexti innan krónunnar er hún um 431 þúsund krónur. Munurinn er um 205 þúsund krónur á mánuði, tæplega 2,5 milljónir króna á ári og tæpar 100 milljónir á lánstímanum. Sama húsið. Sama lánið. Sama fjölskyldan. Nær 100 milljóna króna munur vegna fimm prósentustiga raunvaxtamunar. Þetta eru lífskjör. Verðlag um 30% hærra en innan evrunnar vegna hárra vaxta Áhrifin ná miklu lengra en til heimilanna. Ef fjármagn er árum og áratugum saman dýrara á Íslandi en í stærra myntkerfi verður húsnæðisuppbygging dýrari, fyrirtæki fjárfesta minna, innviðir kosta meira og ríkissjóður og sveitarfélög verja stærri hluta tekna sinna í vexti. Þegar þetta stendur árum saman verður minna eftir til fjárfestinga, uppbyggingar og betri lífskjara. Mun hærri vextir innan krónunnar en innan evrunnar smitast einnig út í verðlag á öllum sviðum hagkerfisins, í framleiðslu, þjónustu, verslun og annars staðar, og valda um 30% hærra verðlagi en í löndum evrunnar sem eru með svipaða landsframleiðslu á mann og Ísland. Fyrir mér felst sjálfstæði ekki aðeins í því að prenta eigin peninga. Raunverulegt efnahagslegt sjálfstæði felst líka í því að þjóð hafi bolmagn til að fjárfesta, byggja upp innviði, standa undir velferðarkerfinu og mæta áföllum án þess að vaxtakostnaður taki sífellt stærri hluta verðmætasköpunarinnar. Sjá gögn í Betrilifskjor.is Krónan, kjarasamningar – evran skapar mestu kaupmáttartækifær þjóðarinnar Nú er mikið rætt um að verðbólga og hátt verðlag geti orðið til þess að segja þurfi upp kjarasamningum. Að mínu mati á krónan mikinn þátt í því, þótt það fái takmarkaða umræðu. Ef verðlag er um 30% hærra en með evru skerðist kaupmáttur til samræmis. Þar fyrir utan valda háir vextir miklum kostnaði fyrir heimili, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög. Þegar fyrirtæki, ríki og sveitarfélög greiða hærri fjármagnskostnað verður fjárhagslegt svigrúm þeirra minna. Sá kostnaður fer að hluta út í verðlag, eykur verðbólgu og dregur úr getu ríkis og sveitarfélaga til innviðauppbyggingar og þjónustu. Einhver mestu kaupmáttartækifæri þjóðarinnar sem og aðila vinnumarkaðarins er í aðild að ESB og upptö0ku evru. Verlag myndi lækka vegna kostnaðar krónunnar á verðlag og vegna lækkunar á tollum. En mesta aukning kaupmáttarins yrði þegar álögum (vöxtum) krónunnar er aflétt af heimilum, fyrirtækjum, (bændum sem öðrum) ríki og sveitarfélögum sem þá myndi sjálfkrafa auka kaupmátt almennings án launahækkana og auka fjárhagslegt sjálfstæði þessara aðila. Já heldur leiðinni að evrunni opinni Ef niðurstaðan verður já gætu vextir farið að lækka fljótlega. Það þarf að ljúka viðræðum, semja um hagsmuni Íslands og þjóðin tekur síðar afstöðu til niðurstöðunnar. En jáið gerir eitt mjög mikilvægt: Það heldur leiðinni út úr krónukerfinu opinni. Með upptöku evru færðist Ísland inn í stöðugra myntbandalag. Áhætta lántaka, veð, bankamunur og samkeppni skipta áfram máli. Vaxtalækkun getur hins vegar gerst hratt, eins og reynsla annarra landa innan evrunnar sýnir. Náttúruáfall getur orðið að efnahagslegu keðjuáfalli vegna krónunnar Þetta myndi breyta áhættusniði íslenska hagkerfisins verulega. 2008 sýndi hvernig krónan getur magnað áfall verulega, þar sem bankaáfall fór í efnahagslegt kerfishrun á Íslandi, á meðan bankar féllu í Lúxemborg, sem var með svipað stórt bankakerfi árið 2008, án þess að gjaldmiðillinn félli og skapaði sömu flóðbylgju skulda og hér, þar sem 65% atvinnulífsins urðu gjaldþrota og þúsundir heimila misstu allt. Árið 2008 fengum við alvarlega kennslustund í áhættustjórnun sem ég vona að þjóðin hafi lært af. Bankahrunið var meginorsök kreppunnar, en krónan féll með og magnaði áfallið í hamfaraáfall. Gengisfallið ýtti undir verðbólgu, jók byrðar skulda og gróf undan efnahagslegu sjálfstæði heimila og fyrirtækja. Bankakreppa varð þannig að enn stærra þjóðhagslegu áfalli þegar gjaldmiðilshrun bættist ofan á. Getur slíkt gerst aftur? Já. Ekki endilega vegna banka og ekki nákvæmlega með sama hætti og 2008. En grundvallaráhættan er enn til staðar – örgjaldmiðill krónan vegna smæðar sem getur veikst hratt þegar stórt ytra áfall dynur yfir. Við verðum að spyrja: Hversu mikið getur krónan magnað næsta áfall upp? Eldvirkni hafin að nýju á Reykjanesskaga eftir 800 ára hlé Þessi spurning verður enn mikilvægari þegar horft er til náttúruvár Íslands. Eldvirkni er hafin að nýju á Reykjanesskaga eftir langa kyrrð og nýtt eldsumbrotaskeið getur staðið, með hléum, í langan tíma. Á næstu 30 árum geta því orðið mörg eldsumbrot á öllum Reykjanesskaganum upp að Krýsuvík, Brennisteinsfjöllum og Hengli eins og varað hefur verið við. Auk þess eru önnur stór eldfjöll komin á tíma. Við vitum ekki hvar þau verða, hversu stór þau verða eða hvaða tjóni þau valda. En það er einmitt tilgangur áhættustjórnunar að undirbúa sig áður en áfallið kemur. Hugsum okkur stærra eldgos sem veldur verulegu tjóni á innviðum, truflar flugsamgöngur eða dregur tímabundið verulega úr ferðaþjónustu og gjaldeyristekjum. Fyrsta höggið er náttúruáfallið sjálft: tjón, minni framleiðsla og tekjumissir. Í krónukerfinu getur síðan annað högg bæst við. Minni gjaldeyristekjur og aukin óvissa geta þrýst á gengið. Krónan veikist, innflutt verð hækkar, verðbólga eykst og þrýstingur verður á hærri vexti. Náttúruáfall getur þannig breyst í gengisáfall, verðbólguáfall, vaxtaáfall og skuldaáfall. Krónan getur með öðrum orðum orðið gengis-, verðbólgu-, vaxta- og skuldamagnari. Ef þjóðin verður bundin innan krónunnar í 30 ár getur þetta gerst oftar en einu sinni. Það er langtímaáhættan sem ég tel að við megum ekki horfa fram hjá heldur meta og taka ákvarðanir út frá því. Evran varnar- og öryggisatriði er varðar þjóðaröryggi Evran myndi auðvitað ekki stöðva eldgos. Hún kæmi ekki í veg fyrir stríð, fjármálakreppur, farsóttir eða samdrátt í ferðaþjónustu. En hún myndi taka eina mjög mikilvæga áhættu úr kerfinu: Íslenski gjaldmiðillinn gæti ekki bæst við áfallið og magnað það upp, því íslenskur örgjaldmiðill væri ekki lengur til. Aðild að ESB myndi auk þessa veita aðgang að ýmsum stuðningsaðgerðum og sjóðum í slíkum tilfellum, sem eru einmitt hannað til að minnka áhættu aðildarlanda og og byggja upp viðnámsþrótt í slíkum tilfellum. Slíkt kerfi er því mikilvægt atriði í stærri áföllum og varða þjóðaröryggi landsins. Kosningin 29. ágúst er ein stærsta og áhættumesta ákvörðun sem þjóðin hefur tekið Þess vegna tel ég niðurstöðuna 29. ágúst mun stærri en venjulega pólitíska ákvörðun. Ef nei þýðir að Ísland verði bundið krónunni næstu 20–30 árin er þjóðin ekki aðeins að velja gjaldmiðil. Hún er að velja að bera uppsafnaða vaxta-, gengis-, verðbólgu- og áfallaáhættu heillar kynslóðar. Á þeim tíma getur viðvarandi vaxtamunur kostað heimili, fyrirtæki og hið opinbera gríðarlegar fjárhæðir. Fjárfestingar verða minni, húsnæði og innviðir dýrari og minna verður eftir til eignamyndunar og lífskjara. Til viðbótar geta komið nokkur stór áföll þar sem krónan bætir gengisfalli, verðbólgu og hærri vöxtum ofan á það áfall sem þjóðin er þegar að glíma við. Þess vegna tel ég þetta eina af afdrifaríkustu og áhættumestu efnahagsákvörðunum sem íslenska þjóðin hefur staðið frammi fyrir. Seðlabanki Íslands ákveður stýrivextina frá fundi til fundar til skamms tíma og baráttan við verðbólgu, óstöðuguleika og háa vexti hefur verið barátta þjóðarinnar í 100 ár og aldrei tekist til lengri tíma. Það er mál til komið að læra af þeirri reynslu. Hingað og ekki lengra. En 29. ágúst ákveður almenningur hvort þjóðin heldur opinni leið að 3–4% vaxtaumhverfi evrunnar og minni áhættu vegna áfalla með JÁ – eða hvort hún verður áfram innan 8–9% hávaxtaumhverfis krónunnar og mikillar áhættu vagna áfalla til næstu 30 ára með NEI. Fyrir mér snýst þetta því ekki um ESB. Þetta snýst um vexti, efnahagslegt öryggi, áhættustjórnun, sjálfstæði og lífskjör heillar kynslóðar – og farsæld þjóðarinnar. Þess vegna er mikilvægt að kjósa JÁ. Ekki vegna þess að öll vandamál hverfi, heldur vegna þess að ég tel það skynsamlegra að halda opinni leið að lægri vöxtum, minni gjaldmiðilsáhættu og öruggari framtíð heillar kynslóðar. Höfundur er fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, EBRD, og hefur víðtæka innlenda og erlenda reynslu af greiningu, stefnumótun, alþjóðlegum fjármálum, EES- og ESB-málum, orku- og atvinnumálum. Hann er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Boston University og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Skattar, tollar og gjöld Verðlag Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun