Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Bjarki Sigurðsson skrifar 21. ágúst 2026 21:01 Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar eru með þeim fjölförnustu á landinu. Vísir/Sigurjón Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir.
Framkvæmdir hefjast við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar á næstu dögum. Beygjuvasar verða þá endurnýjaðir og þar settar hraðahindranir, svokallaðar upphækkaðar gönguþveranir. „Það sem við erum að fara í er fyrst og fremst að bæta umferðaröryggi fyrir keyrandi, gangandi og hjólandi,“ segir Ylfa Rakel Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni. Ylfa Rakel Ólafsdóttir er verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.Vísir/Sigurjón Búist er við því að umferð muni þyngjast verulega á svæðinu á framkvæmdatímanum. Einum vasa verður lokað í einu í um það bil viku hver og fólk beðið um að nota hjáleiðir á meðan. „Það verður ekki hægt að beygja til hægri á framkvæmdatíma en við erum í rauninni ekkert að breyta beygjunni sjálfri. Hún verður óbreytt nema hærri, til að hægja á umferð,“ segir Ylfa. Hér má sjá svipaða hraðahindrun og settar verða upp á gatnamótunum. Vísir/Sigurjón Svipaðar upphækkanir má finna víðar á höfuðborgarsvæðinu og segir Ylfa fólk almennt ánægt með þær. Hins vegar verði að sýna þolinmæði á framkvæmdatímanum sjálfum. Vegagerðin viti vel að skólarnir séu að byrja og umferð að þyngjast en það sé betra að klára framkvæmdirnar sem fyrst en að fresta þeim til næsta sumars. „Þetta verður krefjandi og við áttum okkur alveg á því. Þetta er bara eitthvað sem við verðum að fara í,“ segir Ylfa.
Umferð Umferðaröryggi Reykjavík Vegagerð Samgöngumál Samgönguáætlun Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira