Viðskipti innlent

Þor­geir Páls­son nýr mannauðsstjóri Há­skólans á Bif­röst

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þorgeir var sveitarstjóri í Strandabyggð í sjö ár.
Þorgeir var sveitarstjóri í Strandabyggð í sjö ár. Aðsend

Þorgeir Pálsson hefur verið ráðinn í stöðu mannauðsstjóra hjá Háskólanum á Bifröst. Hann mun einnig gegna starfi sérfræðings á stjórnsýslusviði auk þess sem hann tekur sæti í framkvæmdastjórn háskólans.

Þorgeir er búsettur á Hólmavík ásamt fjölskyldu sinni en hann var áður sveitarstjóri Strandabyggðar í sjö ár og fyrir það framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

„Það gleður okkur að hafa fengið Þorgeir í stöðu mannauðsstjóra Háskólans á Bifröst og við teljum að reynsla hans og þekking á stjórnunarstörfum og störfum á alþjóðlegum vettvangi muni reynast okkur dýrmæt viðbót í okkar fjölbreytta hóp starfsfólks. Við bjóðum Þorgeir velkominn til starfa,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

Í tilkynningu kemur fram að Þorgeir er rekstrarhagfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þá er hann með diplóma í alþjóðaviðskiptum frá Bedriftsökonomisk Institutt, Skedsmo/Oslo í Noregi og BSc-gráðu frá Nordland University, Bodø, Noregi.

Ráðgjafi og kennari

Einnig kemur fram að hann hafi unnið sem stjórnunar- og stefnumótunarráðgjafi og unnið að innleiðingarverkefnum hjá fyrirtækjum og stofnunum, svo sem hjá Samskipum, Saga film, Iceland Seafood International, Lánasýslu ríkisins og fleirum.

Hann hefur kennt við háskóla á Íslandi í um 30 ár og þá aðallega kennt alþjóðaviðskipti en einnig verkefnastjórnun, stefnumótun og markaðsfræði. Eins hefur hann kennt við Comenius-háskólann í Bratislava í Slóvakíu og við Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.


Tengdar fréttir

Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda

Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna.

Tekur við við­skipta­deild Bif­rastar eftir átaka­vetur

Rakel Heiðmarsdóttir er nýr deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Deildin var miðpunktur harðra deilna innan veggja skólans í vetur sem enduðu með því að þáverandi rektor lét af störfum.

Tveimur sagt upp á Bifröst

Tveimur var sagt upp í gær á stoðsviði og stjórnsýslusviði Háskólans á Bifröst. Um hagræðingaraðgerðir er að ræða en rektor á ekki von á frekari uppsögnum í ár. Í haust hefst fjölmennasta önn skólans frá upphafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×