Viðskipti innlent

Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum

Árni Sæberg skrifar
Höfuðstöðvar Símans í Ármúla.
Höfuðstöðvar Símans í Ármúla. Vísir/Vilhelm

Afkoma Símans á öðrum ársfjórðungi var ásættanleg en hefði mátt vera sterkari, að sögn forstjóra. Ekkert nýtt er að frétta af kaupum Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar.

Síminn birti afkomu annars ársfjórðungs eftir lokun markaða í gær. Í tilkynningu er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur forstjóra að tekjur af fjarskiptum hafi hækkað lítillega milli ára, en tekjur af sjónvarpsþjónustu dregist aðeins saman. Kröftugur vöxtur hafi verið í auglýsingamiðlun, en sala í tengslum við sveitarstjórnarkosningar hafi gengið vonum framar, bæði í Sjónvarpi Símans og á umhverfismiðlaneti Billboard.

„Eins og hjá öðrum fyrirtækjum og heimilum í landinu hafa viðvarandi verðbólguþrýstingur og kostnaðarhækkanir á breiðum grunni sett mark sitt á afkomuna. Á fjórðungnum var því gripið til markvissra hagræðingaraðgerða í grunnrekstri Símans sem munu byrja að skila sparnaði á síðari árshelmingi og styðja við fjárhagsleg markmið félagsins.“

Helstu niðurstöður úr rekstri Símans á 2F 2026:

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2026 námu 7.356 m.kr. samanborið við 7.196 m.kr. á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 2,2%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu í stað á milli ára. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 705 m.kr. samanborið við 604 m.kr. á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 16,7%. Vörusala jókst um 20,2% á milli ára.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.599 m.kr. á 2F 2026 og lækkaði um 325 m.kr. eða 16,9% frá sama tímabili 2025. EBITDA hlutfallið er 21,7% á 2F 2026 en var 26,7% á sama tímabili 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 620 m.kr. á 2F 2026 samanborið við 931 m.kr. á sama tímabili 2025.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 281 m.kr. á 2F 2026 en námu 257 m.kr. á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 552 m.kr., fjármunatekjur voru 274 m.kr. og gengistap nam 3 m.kr.
  • Hagnaður á 2F 2026 nam 269 m.kr. samanborið við 537 m.kr. á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,12 kr. á fjórðungnum.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 20,8 ma.kr. í lok 2F 2026, en voru 19,5 ma.kr. í árslok 2025. Handbært fé í lok 2F 2026 nam 2.065 m.kr., en var 980 m.kr. í árslok 2025. Bókfært virði útlánasafns Símans Pay var 4,2 ma.kr. í lok 2F 2026. Hreinar vaxtaberandi skuldir / 12M EBITDA1 í lok 2F 2026 var 2,1x.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 37,2% í lok 2F 2026 og eigið fé 16,7 ma.kr.

Ekkert nýtt að frétta

Í tilkynningunni er haft eftir Maríu Björk að þrátt fyrir að ytri aðstæður séu um margt krefjandi haldi félagið áfram umbreytingu samstæðunnar. Markmiðið sé að innleysa umtalsverð samlegðartækifæri auk þess að treysta grunninn fyrir framtíðarvöxt og enn betri nýtingu innviða. Eignarhaldsfélagið Ásar hafi þannig formlega til starfa 1. júlí og sama dag hafi Greiðslumiðlun Íslands orðið hluti samstæðunnar.

Í júlí hafi öll bankalán samstæðunnar verið endurfjármögnuð af Landsbankanum til næstu fimm ára. Um leið hafi félagið tryggt sér aðgang að frekara fjármagni til vaxtar, en heildarfjárhæð fjármögnunarinnar sé 31 milljarður króna. Með endurfjármögnuninni tryggi félagið sér hagstæð kjör og skilmála til viðbótar við aukinn sveigjanleika, sem henti vel í vaxtarfasa næstu ára.

„Við hækkum afkomuspá okkar vegna innkomu Greiðslumiðlunar Íslands. Samhliða lækkum við fjárfestingarspá ársins um 200 milljónir, en minni fjárfestingarþörf má meðal annars þakka hagnýtingu gervigreindar sem bætir skilvirkni í hugbúnaðarþróun, auk hagstæðari samninga um kaup á sjónvarpefni. Tækifæri eru til að nýta gervigreind á fleiri sviðum starfseminnar með tilheyrandi rekstrarábata, en það er ein af lykiláherslum félagsins á komandi misserum.“

Athygli vekur að í tilkynningunni er ekki minnst einu orði á fyrirhuguð kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar, sem tilkynnt var um þann 12. mars síðastliðinn.

Síminn stóð fyrir fjárfestakynningu í tengslum við afkomutilkynninguna og þar var María Björk spurð að því hvenær mætti búast við því að kaupin rötuðu inn á borð Samkeppniseftirlitsins.

„Þið sjáið að við minnumst ekki á það í þessari kynningu og ástæðan er sú að það er ekkert til að reporta. Síðasta tilkynning, hún stendur. Félögin hafa undirritað skilmálaskjal og þetta er allt í hefðbundnu ferli, áreiðanleikakönnun og kaupsamningsviðræðum. En nei, við getum ekki gefið ykkur neina hugmynd um það hvenær því ferli lýkur.“

Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×