Sport

Á­fram of­sótt og elti­hrellirinn á­kærður að nýju

Sindri Sverrisson skrifar
Þrátt fyrir martröðina sem Frida Karlsson hefur þurft að glíma við hefur henni gengið allt í hag í snjónum. Hún vann tvenn ólympíugull í febrúar.
Þrátt fyrir martröðina sem Frida Karlsson hefur þurft að glíma við hefur henni gengið allt í hag í snjónum. Hún vann tvenn ólympíugull í febrúar. Getty/Alex Slitz

Þrátt fyrir nálgunarbann og fyrri dóm hefur sænska skíðadrottningin Frida Karlsson ekki fengið frið fyrir eltihrelli sem nú hefur verið ákærður í annað sinn fyrir að ofsækja tvöfalda ólympíumeistarann.

Eltihrellirinn, sem er 66 ára gamall karlmaður, var dæmdur vorið 2025 eftir að hafa til að mynda sent skíðagöngustjörnunni bréf, fjölda skilaboða, reynt að hringja í hana yfir 200 sinnum og beðið fyrir utan heimili hennar.

Hann hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm í Ångermanland dómstólnum i Svíþjóð, og þurfti því ekkert að sitja inni, og var gert að greiða jafnvirði rúmlega hálfrar milljónar íslenskra króna í sekt.

Eftir dóminn, sem reyndar var áfrýjað, og þrátt fyrir nálgunarbann, hefur maðurinn hins vegar haldið áfram að hrella Karlsson. Í september í fyrra byrjaði hann að nýju að senda símaskilaboð, hringja og senda skilaboð í gegnum Instagram.

Ofsóknirnar komu þó ekki í veg fyrir að Frida Karlsson ætti stórkostlega Vetrarólympíuleika á Ítalíu í febrúar, þar sem hún vann tvenn ólympíugullverðlaun.

Það er ekki aðeins hin 27 ára gamla Frida sem þurft hefur að glíma við þessar ofsóknir heldur hefur maðurinn einnig haft samband við Miu, móður hennar. Hann hefur nú verið ákærður að nýju.

„Okkur fannst nauðsynlegt að tilkynna það þegar þetta fór að gerast aftur,“ sagði móðirinn Mia Karlsson við Expressen. Hún er stolt af því hvernig dóttir hennar hefur höndlað þessa martröð.

„Mér finnst hún hafa staðið sig vel. Hún er aðallega hrædd við ferlið, því það er ótrúlega erfitt að fara í gegnum allt lagaferlið,“ sagði Mia Karlsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×