Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 12:01 Einar Karl Haraldsson og Erik Pálsson með orgelinu í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Rudiger Þór Seidenfaden Þegar nýtt orgel var tekið í notkun í Grensáskirkju fyrr á árinu ákvað söfnuðurinn að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði.
Orgelið er frá þýska framleiðandanum Steinmayer, kom fyrst til landsins árið 1970 og bættu dönsku orgelsmiðirnir Bruno Christensen & Sönner síðar einni bassarödd við orgelið. Það var notað til margra ára í helgihaldi Grensássóknar þar til nýtt orgel var tekið í notkun og var í kjölfarið ákveðið að gefa því nýtt líf í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Ásta organisti og fiðleikarar, ásamt gestum.Rudiger Þór Seidenfaden Að lokinni messu í Grensáskirkju sunnudaginn 16. ágúst síðastliðinn hélt hátt í þrjátíu manna hópur fólks úr söfnuðinum í ferð í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til að fylgja orgelgjöfinni úr hlaði. Sameiginleg messa Grensássafnaðar og safnaðarins í Hallgrímskirkju fór fram af þessu tilefni klukkan 14 þann daginn. Erik Pálsson, formaður sóknarnefndar Grensáskirkju, flutti ávarp við helgihaldið og afhenti formanni sóknarnefndar Hallgrímskirkju í Saurbæ innrammað skjal með texta um orgelið og gjöfina. Prestar kirkjanna sáu um helgihald. Rudiger Þór Seidenfaden Hópurinn samanstóð meðal annars af kirkjukór Grensáskirkju, Ástu Haraldsdóttur organista, fulltrúum sóknarnefndar og safnaðarins. Séra Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur Grensáskirkju tók þátt í helgihaldinu, sem séra Þráinn Haraldsson og séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiddu, og lék Gréta Zimsen á fiðlu ásamt Rósu Jóhannesdóttur. Margrét Bóasdóttir fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar stjórnaði sameiginlegum kór heimamanna og kirkjukórs Grensáskirkju við undirleik Ástu organista. Að loknu helgihaldinu bauð sóknarnefndin og heimafólk upp á messukaffi í prestssetrinu í Saurbæ í blíðskapar veðri þar sem Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta. Formennirnir Einar Karl Haraldsson og Erik Pálsson með orgelið á milli sín.Rudiger Þór Seidenfaden
Þjóðkirkjan Tímamót Hvalfjarðarsveit Reykjavík Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira