Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 13:48 Breki Hrafn Árnason er mættur út í atvinnumennsku, til stórveldis Benfica í Portúgal. Benfica Markvörðurinn Breki Hrafn Árnason segir að tíminn úti í Portúgal fari vel af stað en hann samdi við handboltaliðið Benfica í sumar. Hann hefur nú tekið skrefið út í atvinnumennsku og þannig fetað í fótspor Viktors Gísla Hallgrímssonar sem hefur veitt honum mikinn stuðning.
Breki gerði fjögurra ára samning við portúgalska stórliðið, eftir að hafa varið mark Fram með stakri prýði síðustu ár og meðal annars orðið Íslands- og bikarmeistari með liðinu á þarsíðasta tímabili. „Fyrst hljómaði þetta mjög spennandi þannig að ég fór inn í viðræður og eftir viðræður var ég með virkilega góða tilfinningu fyrir þessu, og það leiddi til þess að ég ákvað að skrifa undir,“ segir Breki í viðtali við Stefán Árna Pálsson í Sportpakkanum á Sýn. „Við byrjuðum 20. júlí og höfum verið að æfa og spila nokkra æfingaleiki. Þetta er bara búin að vera mjög góð reynsla hingað til og ég er virkilega spenntur fyrir framhaldinu,“ segir Breki en við hverju má búast nú þegar hann er mættur í harðan heim atvinnumennskunnar? „Eins og ég sé þetta fyrir mér þá er ég bara að fara að berjast, sérstaklega þetta fyrsta tímabil. Þá þarf ég virkilega að vinna fyrir mínu sæti og það verður áskorun. Það er líka ástæðan fyrir því að maður er í þessu. Það er alltaf áskorun, sama hvar maður fer og hvar maður spilar. Síðan ég var lítill krakki hef ég alltaf ætlað mér að fara út í atvinnumennsku. Ég er virkilega ánægður með að gera það hjá Benfica, þar sem ég fæ góða leiki í deild og líka Evrópukeppni sem ég tel mjög gott fyrir mig og hjálpa mér að bæta mig og verða að þeim handboltamanni sem ég vil verða,“ segir Breki. Breki fór frá Fram í atvinnumennsku líkt og Viktor Gísli gerði á sínum tíma og Evrópumeistarinn hefur verið Breka innan handar: „Ég hef verið lengi í góðum samskiptum við hann. Fengið margar ráðleggingar og átt mikil og góð samskipti við hann. Ég get alveg sagt að hann sé búinn að vera hvatning og stuðningur fyrir mig, enda hef ég litið mikið upp til hans frá því ég var ungur Framari. Hann er frábær gæi,“ segir Breki um landsliðsmarkvörðinn.
Handbolti Fram Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira