Leavitt hættir hjá Trump Samúel Karl Ólason skrifar 12. ágúst 2026 23:38 Karoline Leavitt hefur verið einhver dyggasti stuðningsmaður og náinn ráðgjafi Trumps. AP/Julia Demaree Nikhinson Karoline Leavitt, talskona Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, mun láta af störfum í lok mánaðarins. Hún er 28 ára gömul og því yngsta talskona Hvíta hússins í sögu Bandaríkjanna, og hefur verið náinn ráðgjafi Trumps. Leavitt mun áfram ráðleggja Trump og Repúblikönum hvað varðar MAGA-hreyfingu forsetans.
Trump segir hana vera einn af bestu talsmönnum Hvíta hússins. Í yfirlýsingu segist hún vera að hætta til að verja meiri tíma með ungum börnum sínum. Hún eignaðist dóttur, sitt annað barn, í maí og sneri nýverið úr fæðingarorlofi. Leavitt gekk til liðs við Trump árið 2024 og kom að forsetaframboði hans, áður en hún varð talskona hans bæði fyrir og eftir embættistöku. Hún hefur sinnt starfinu í um eitt og hálft ár en á þeim tíma hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á því hvaða blaðamenn fá aðgang að Hvíta húsinu. Þeir voru áður valdir af samtökum blaðamanna í Washington og skiptust á að starfa í Hvíta húsinu, svo flestir fengju jafnan aðgang. Í forsetatíð Trumps hefur ríkisstjórnin valið sérstaklega stóran hluta þeirra blaðamanna sem fá aðgang að Hvíta húsinu og eru þeir flestir mjög hliðhollir forsetanum. Margir þeirra hafa haldið úti hlaðvörp og litla miðla. Eins og fram kemur í grein Reuters hafa einhverjir litið á þetta sem viðurkenningu á breyttu landslagi fjölmiðla en aðrir segja þetta leið Trump-liða til að refsa hefðbundnum fjölmiðlum og verðlauna þá sem taldir eru hliðhollir ríkisstjórninni. Á fyrra kjörtímabili sínu fór Trump gegnum marga talsmenn. Leavitt er sögð hafa náð góðri tengingu við Trump og hún endurómaði ítrekað ósannindi hans og viðhorf í garð fjölmiðla, sem vakti lukku hjá forsetanum. Samkvæmt frétt New York Times varð hún einn af hans dyggustu stuðningsmönnum og verjendum. Trump hét því einu sinni að hann myndi aldrei reka hana úr starfi. Í færslu sem hann skrifaði á Truth Social segist Trump skilja ákvörðun Leavitt og virða hana. Hann segir að hún verði áframeinn af helstu ráðgjöfum hans og áhrifamikil innan Repúblikanaflokksins. Færsla Trumps á Truth Social. Sjálf segist Leavitt hafa fundið fyrir því þegar hún sneri aftur úr fæðingarorlofi í síðasta mánuði að hún gæti ekki bæði verið talskona Hvíta húsins og sú móðir sem hún vill vera. Í færslu á X (áður Twitter) sagði hún einnig að Bandaríkin stæðu frammi fyrir einstaklega mikilli ógn í formi Demókrataflokksins, fyrir komandi þingkosningar. Demókratar vildu rústa öllu sem væri gott við Bandaríkin. Hún sagðist ætla að taka þátt í baráttunni gegn Demókrötum. Serving as the White House Press Secretary over the past year and a half has been the honor and adventure of a lifetime. I am incredibly grateful to President Trump for granting me so many extraordinary opportunities, such as working in the West Wing and spending countless hours… https://t.co/4jyW61DGGh pic.twitter.com/xny1yccuBn— Karoline Leavitt (@karolineleavitt) August 12, 2026
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð. 6. ágúst 2026 14:57 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira
Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð. 6. ágúst 2026 14:57