Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 12. ágúst 2026 07:32 Umferðartakmarkanir verða víða á vesturhelmingi landsins í dag. Vilhelm Vegagerðin hefur tekið saman þær takmarkanir sem verða á vegum landsins vegna almyrkvans, síðdegis í dag miðvikudaginn 12. ágúst. Vegfarendur eru vegfarendur beðnir um að hafa í huga að búist er við mikilli umferð á vegum landsins, gefa sér góðan tíma til ferðalaga, skipuleggja sig vel og leggja tímanlega af stað.
Nokkrum vegum á vesturhelmingi landsins verður lokað eða þeim stýrt með umferðarstýringu hluta úr degi. Í Dölunum verður einstefna á Klofningsvegi frá klukkan 9, úr Hvammssveit, um Fellsströnd, yfir á Skarðsströnd og að Saurbæ. Á Vestfjörðum verður Kollsvíkurvegur, vegur númer 615, lokaður frá Hænuvík og að Kollsvík. Vestfjarðargöng lúta svo umferðarstýringu frá lögreglu frá klukkan hálftíu nú í morgunsárið og fram til klukkan tíu í kvöld, við alla þrjá munna ganganna. Á Örlygshafnarvegi verður síðan einstefna frá því klukkan átta og eitthvað framyfir myrkvann, frá Barðastrandarvegi að Látrabjargi. Hraðatakmarkanir verða einnig á svæðinu að því er segir á síðu Vegagerðarinnar. Svipaða sögu er að segja frá Rauðasandsvegi þar sem verður einstefna frá Örlygshafnarvegi og á Rauðasand. Á höfuðborgarsvæðinu verður líka eitthvað um lokanir, Suðurgötu og Ægisíðu verður lokað að hluta fyrir umferð frá kl 15:00 – 20:00 og í Vogum verður einstefna á á Vatnsleysustrandarvegi, frá Vogum að Kúagerði, frá kl. 11. Á Garðskagavegi verður einstefna frá Nesvegi og að Sandgerði frá klukkan 11 og í Grindavík veður Bláalónsvegur lokaður frá klukkan 11. til 23. Nánari upplýsingar er að finna um þetta allt saman á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, sagði í samtali við fréttastofu í gærkvöldi að umferðin væri þegar tekin að þyngjast en lögregla hefur hugað að undirbýuningi fyrir viðburðinn í marga mánuði. Þannig hefur verið fjölgað í liðinu, því á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Í dag verður þeim hinsvegar fjölgað um sextán hið minnsta, eða tæplega fjórfalt fleiri en á venjulegum ágústdegi.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Umferð Látrabjarg Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Sjá meira