Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Árni Sæberg skrifar 11. ágúst 2026 11:00 Kristín Edwald er formaður Landskjörstjórnar. Vísir/Einar Landskjörstjórn hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem frétt Morgunblaðsins, um að orðalagi á upplýsingavef Landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok mánaðar hafi verið breytt, er sögð alfarið röng.
Í frétt Morgunblaðsins í gær sagði að orðalagi á vef upplýsingavef Landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði verið breytt án þess að breytingarinnar væri getið. „Þar sagði áður að nei-kjósandi hafnaði aðild, „a.m.k. ekki að sinni“, en já-kjósandi væri „ekki endilega“ að styðja aðild. Þessi ósamhverfa túlkun svarkostanna er nú horfin og hana er ekki heldur að finna í bæklingi sem dreift var um allt land,“ sagði í fréttinni. Engar breytingar verið gerðar Í yfirlýsingu frá Landskjörstjórn, sem birt var á vef Landskjörstjórnar í dag, segir að í tilefni af fréttinni vilji kjörstjórnin taka það fra að þessi fullyrðing Morgunblaðsins sé alfarið röng. „Engar breytingar hafa verið gerðar á þeim texta sem birtur er á upplýsingavef landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Komi til þess að texta kynningarefnisins verði breytt mun þess verða getið á upplýsingavefnum með skýrum hætti.“ Orðalagið ekki að finna í eldri útgáfum Á vefsafni Landsbókasafns Íslands, sem varðveitir flest íslenskt efni sem gefið er út á vefnum, er ekki að finna eldri útgáfu af upplýsingavefnum sem inniheldur orðalagið sem vitnað er í í frétt Morgunblaðsins. Afrit hefur verið tekið af upplýsingavefnum einu sinni í viku frá því að hann var settur í loftið þann 6. júlí síðastliðinn.
Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Óvænt frumvarp innviðaráðherra beint á dagskrá Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira