Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Árni Sæberg skrifar 10. ágúst 2026 20:00 Ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknar, Sósíalistaflokksins, Samfylkingar, Flokks Fólksins og Vinstri Grænna gengu saman í Gleðigöngunni. Fulltrúar frá ungliðahreyfingum allra stjórnmálaflokka landsins tóku þátt í Gleðigöngunni um helgina, nema ungum Miðflokksmönnum. Formaðurinn segir að í göngunni séu auglýstar hugmyndir sem þeir telji ekki „ástæðu til að lyfta á stall“. Hápunktur hinsegin daga var á laugardag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. Gríðarlegur fjöldi fólks tók þátt í göngunni en skipuleggjendur hennar höfðu reiknað með því að hún yrði sú fjölmennasta frá upphafi. Á meðal þeirra sem létu sjá sig þar voru borgarfulltrúar, meðal annars Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, Guðrún Karls Helgudóttir biskup, og auðvitað Páll Óskar Hjálmtýsson sem var með risastóran flæmingja með sér. Venju samkvæmt komu fulltrúar frá ungliðahreyfingum stóru stjórnmálaflokka landsins saman og gengu fylktu liði niður Skólavörðustíginn, samfélagi hinsegin fólks til stuðnings. Allar helstu ungliðahreyfingar tóku þátt í göngunni, að ungliðahreyfingu Miðflokksins undanskilinni. Antoni Sveini McKee, formanni ungra Miðflokksmanna, var boðið að taka þátt í skipulagningu samflots ungliða í Gleðigöngunni. Hann þakkað fyrir boðið, samkvæmt heimildum Vísis, en sagði unga Miðflokksmenn ekki ætla að taka þátt í göngunni að þessu sinni. Í svari við fyrirspurn Vísis segir Anton að Ungir Miðflokksmenn styðji af heilum hug þau mannréttindi sem tryggð séu í stjórnarskrá Íslands. Það er að segja að allir megi lifa frjálsir og án mismununar sökum trúar, kynþáttar, kynhneigðar og kynferðis og að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkalífi og ástalífi fólks. Í Gleðigöngunni séu „hins vegar auglýstar og markaðssettar, meðal annars gagnvart börnum, hugmyndir sem við teljum ekki ástæðu til að lyfta á stall.“ „Þar á meðal eru áberandi klámvæddar og niðrandi hugmyndir þar sem kynlíf er tengt við ofbeldi og kúgun. Við teljum ekki heldur viðeigandi að talsmenn vændis fái vettvang hjá hinu opinbera til að markaðssetja málstað sinn undir merkjum fjölskylduhátíðar. Þá höfum við lýst efasemdum um að ala á þeim hugmyndum meðal barna og ungmenna að líkami þeirra sé rangur og að hann þurfi að leiðrétta með óafturkræfum læknisfræðilegum inngripum, svo sem kynþroskabælandi meðferðum. Eins höfum við gert athugasemdir við viðhorf leiðandi samtaka á þessu sviði til tjáningarfrelsis.“ Enn fremur segir Anton að eins og fyrri ár hafi félagar í Miðflokknum gengið í Gleðigöngunni, hver á sínum forsendum. „...en ungliðahreyfing Miðflokksins sér ekki ástæðu til að taka þátt í tilraunum stjórnmálaflokka til að þvinga fram „þverpólitíska sátt” um ákveðin atriði á þessu sviði sem ekki ríkir þverpólitísk sátt um. Það breytir engu um fullan stuðning flokksins við grundvallarréttindi allra landsmanna.“ Ungir Miðflokksmenn styðja af heilum hug þau mannréttindi sem tryggð eru í stjórnarskrá Íslands, að allir megi lifa frjálsir og án mismununar sökum trúar, kynþáttar, kynhneigðar og kynferðis og að ríkið skipti sér ekki af einkalífi og ástalífi fólks. Í þessari göngu eru hins vegar auglýstar og markaðssettar, meðal annars gagnvart börnum, hugmyndir sem við teljum ekki ástæðu til að lyfta á stall. Þar á meðal eru áberandi klámvæddar og niðrandi hugmyndir þar sem kynlíf er tengt við ofbeldi og kúgun. Við teljum ekki heldur viðeigandi að talsmenn vændis fái vettvang hjá hinu opinbera til að markaðssetja málstað sinn undir merkjum fjölskylduhátíðar. Þá höfum við lýst efasemdum um að ala á þeim hugmyndum meðal barna og ungmenna að líkami þeirra sé rangur og að hann þurfi að leiðrétta með óafturkræfum læknisfræðilegum inngripum, svo sem kynþroskabælandi meðferðum. Eins höfum við gert athugasemdir við viðhorf leiðandi samtaka á þessu sviði til tjáningarfrelsis. Eins og fyrri ár gengu félagar í Miðflokknum í Gleðigöngunni, hver á sínum forsendum, en ungliðahreyfing Miðflokksins sér ekki ástæðu til að taka þátt í tilraunum stjórnmálaflokka til að þvinga fram „þverpólitíska sátt” um ákveðin atriði á þessu sviði sem ekki ríkir þverpólitísk sátt um. Það breytir engu um fullan stuðning flokksins við grundvallarréttindi allra landsmanna. Gleðigangan Hinsegin Miðflokkurinn Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Hápunktur hinsegin daga var á laugardag þegar Gleðigangan var gengin í Reykjavík frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og endaði með útitónleikum í Hljómskálagarðinum. Gríðarlegur fjöldi fólks tók þátt í göngunni en skipuleggjendur hennar höfðu reiknað með því að hún yrði sú fjölmennasta frá upphafi. Á meðal þeirra sem létu sjá sig þar voru borgarfulltrúar, meðal annars Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, Guðrún Karls Helgudóttir biskup, og auðvitað Páll Óskar Hjálmtýsson sem var með risastóran flæmingja með sér. Venju samkvæmt komu fulltrúar frá ungliðahreyfingum stóru stjórnmálaflokka landsins saman og gengu fylktu liði niður Skólavörðustíginn, samfélagi hinsegin fólks til stuðnings. Allar helstu ungliðahreyfingar tóku þátt í göngunni, að ungliðahreyfingu Miðflokksins undanskilinni. Antoni Sveini McKee, formanni ungra Miðflokksmanna, var boðið að taka þátt í skipulagningu samflots ungliða í Gleðigöngunni. Hann þakkað fyrir boðið, samkvæmt heimildum Vísis, en sagði unga Miðflokksmenn ekki ætla að taka þátt í göngunni að þessu sinni. Í svari við fyrirspurn Vísis segir Anton að Ungir Miðflokksmenn styðji af heilum hug þau mannréttindi sem tryggð séu í stjórnarskrá Íslands. Það er að segja að allir megi lifa frjálsir og án mismununar sökum trúar, kynþáttar, kynhneigðar og kynferðis og að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkalífi og ástalífi fólks. Í Gleðigöngunni séu „hins vegar auglýstar og markaðssettar, meðal annars gagnvart börnum, hugmyndir sem við teljum ekki ástæðu til að lyfta á stall.“ „Þar á meðal eru áberandi klámvæddar og niðrandi hugmyndir þar sem kynlíf er tengt við ofbeldi og kúgun. Við teljum ekki heldur viðeigandi að talsmenn vændis fái vettvang hjá hinu opinbera til að markaðssetja málstað sinn undir merkjum fjölskylduhátíðar. Þá höfum við lýst efasemdum um að ala á þeim hugmyndum meðal barna og ungmenna að líkami þeirra sé rangur og að hann þurfi að leiðrétta með óafturkræfum læknisfræðilegum inngripum, svo sem kynþroskabælandi meðferðum. Eins höfum við gert athugasemdir við viðhorf leiðandi samtaka á þessu sviði til tjáningarfrelsis.“ Enn fremur segir Anton að eins og fyrri ár hafi félagar í Miðflokknum gengið í Gleðigöngunni, hver á sínum forsendum. „...en ungliðahreyfing Miðflokksins sér ekki ástæðu til að taka þátt í tilraunum stjórnmálaflokka til að þvinga fram „þverpólitíska sátt” um ákveðin atriði á þessu sviði sem ekki ríkir þverpólitísk sátt um. Það breytir engu um fullan stuðning flokksins við grundvallarréttindi allra landsmanna.“ Ungir Miðflokksmenn styðja af heilum hug þau mannréttindi sem tryggð eru í stjórnarskrá Íslands, að allir megi lifa frjálsir og án mismununar sökum trúar, kynþáttar, kynhneigðar og kynferðis og að ríkið skipti sér ekki af einkalífi og ástalífi fólks. Í þessari göngu eru hins vegar auglýstar og markaðssettar, meðal annars gagnvart börnum, hugmyndir sem við teljum ekki ástæðu til að lyfta á stall. Þar á meðal eru áberandi klámvæddar og niðrandi hugmyndir þar sem kynlíf er tengt við ofbeldi og kúgun. Við teljum ekki heldur viðeigandi að talsmenn vændis fái vettvang hjá hinu opinbera til að markaðssetja málstað sinn undir merkjum fjölskylduhátíðar. Þá höfum við lýst efasemdum um að ala á þeim hugmyndum meðal barna og ungmenna að líkami þeirra sé rangur og að hann þurfi að leiðrétta með óafturkræfum læknisfræðilegum inngripum, svo sem kynþroskabælandi meðferðum. Eins höfum við gert athugasemdir við viðhorf leiðandi samtaka á þessu sviði til tjáningarfrelsis. Eins og fyrri ár gengu félagar í Miðflokknum í Gleðigöngunni, hver á sínum forsendum, en ungliðahreyfing Miðflokksins sér ekki ástæðu til að taka þátt í tilraunum stjórnmálaflokka til að þvinga fram „þverpólitíska sátt” um ákveðin atriði á þessu sviði sem ekki ríkir þverpólitísk sátt um. Það breytir engu um fullan stuðning flokksins við grundvallarréttindi allra landsmanna.
Ungir Miðflokksmenn styðja af heilum hug þau mannréttindi sem tryggð eru í stjórnarskrá Íslands, að allir megi lifa frjálsir og án mismununar sökum trúar, kynþáttar, kynhneigðar og kynferðis og að ríkið skipti sér ekki af einkalífi og ástalífi fólks. Í þessari göngu eru hins vegar auglýstar og markaðssettar, meðal annars gagnvart börnum, hugmyndir sem við teljum ekki ástæðu til að lyfta á stall. Þar á meðal eru áberandi klámvæddar og niðrandi hugmyndir þar sem kynlíf er tengt við ofbeldi og kúgun. Við teljum ekki heldur viðeigandi að talsmenn vændis fái vettvang hjá hinu opinbera til að markaðssetja málstað sinn undir merkjum fjölskylduhátíðar. Þá höfum við lýst efasemdum um að ala á þeim hugmyndum meðal barna og ungmenna að líkami þeirra sé rangur og að hann þurfi að leiðrétta með óafturkræfum læknisfræðilegum inngripum, svo sem kynþroskabælandi meðferðum. Eins höfum við gert athugasemdir við viðhorf leiðandi samtaka á þessu sviði til tjáningarfrelsis. Eins og fyrri ár gengu félagar í Miðflokknum í Gleðigöngunni, hver á sínum forsendum, en ungliðahreyfing Miðflokksins sér ekki ástæðu til að taka þátt í tilraunum stjórnmálaflokka til að þvinga fram „þverpólitíska sátt” um ákveðin atriði á þessu sviði sem ekki ríkir þverpólitísk sátt um. Það breytir engu um fullan stuðning flokksins við grundvallarréttindi allra landsmanna.
Gleðigangan Hinsegin Miðflokkurinn Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira