Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Lovísa Arnardóttir skrifar 10. ágúst 2026 11:37 Hægt verður að njóta sólmyrkvans í nokkuð langa stund við Garðskagavita. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að vegna mikils fjölda sem búist er við að fylgist með almyrkvanum á Reykjanesi verði viðbúnaður viðbragðsaðila aukinn. Lögreglan muni njóta aðstoðar björgunarsveita við þau verkefni sem upp kunna að koma. Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur ásamt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði einnig með aukinn viðbúnað. Þá kemur fram að aðgerðastjórn verði virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir starfræktar á svæðinu til að tryggja skilvirka samhæfingu viðbragðsaðila og viðbrögð við mögulegum atvikum. Í tilkynningu eru íbúar á svæðinu minntir á að almyrkvinn sést vel frá heimilum í þéttbýli og því ekki nauðsynlegt að leggja í langferð. Sveitarfélögin á svæðinu hafa jafnframt komið upp safnstöðum á völdum stöðum þar sem fólk getur komið saman og fylgst með almyrkvanum. Hvött til að ganga og hjóla eða vera heima Fólk er hvatt til að ganga eða hjóla á safnstaði innan þéttbýlis, eftir því sem aðstæður leyfa. Með því megi draga úr umferðarálagi og auðvelda viðbragðsaðilum að komast leiðar sinnar ef útköll eða önnur verkefni koma upp. Þá eru þau sem ætla að ferðast um Reykjanesið hvött til að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir að dvelja lengur á áfangastað. Búast megi við miklu umferðarálagi og töfum á vegum á Reykjanesi. Fólk er jafnframt hvatt til að hafa með sér mat og drykk og, fyrir þá sem þurfa á reglulegri lyfjagjöf að halda, að huga að því að hafa nægjanlegt magn lyfja meðferðis. Mikilvægt er að vera vel undirbúinn fyrir mögulegar tafir og lengri dvöl í umferðinni. Fólk er beðið um að virða merkingar, lokanir og fyrirmæli lögreglu og annarra viðbragðsaðila og nota eingöngu skilgreind bílastæði. Vegna umferðarálags verða sérstakar umferðartakmarkanir og einstefnur á ákveðnum leiðum. Garðskagavegur/Stafnesvegur (45): Einstefna verður frá Nesvegi/Hafnarvegi með akstursstefnu til norðurs í átt að Sandgerði Vatnsleysustrandarvegur (420): Einstefna frá Vogum með akstursstefnu til austur í átt að Kúagerði. Bláalónsvegur: Lokað er fyrir umferð Skagabraut að Garðskagavita: Einstefna verður að Garðskaga og keyrt til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði Höskuldarvallarvegur: Lokað er fyrir umferð Í tilkynningu eru farþegar á leið á Keflavíkurflugvöll sérstaklega hvattir til að mæta tímanlega og gera ráð fyrir töfum. Þar segir einnig að viðbúið sé að mikið álag verði á GSM-farsímakerfið, sérstaklega á stöðum utan þéttbýlis þar sem mikill fjöldi fólks kann að safnast saman. „Almyrkvi er sjaldgæfur og einstakur viðburður og við viljum að allir geti notið hans á öruggan og ánægjulegan hátt. Skipuleggið ferðina vel, farið tímanlega af stað, hafið mat, drykk og nauðsynleg lyf meðferðis, notið viðurkennd sólmyrkvagleraugu og fylgið fyrirmælum viðbragðsaðila,“ segir í tilkynningunni. Nánari upplýsingar um safnstaði, bílastæði, viðburði og skipulag vegna almyrkvans má finna á heimasíðum sveitarfélaganna, visitreykjanes.is og solmyrkvi2026.is en þar er einnig fróðleikur um almyrkan.
Lögreglumál Almyrkvi 12. ágúst 2026 Suðurnesjabær Reykjanesbær Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira