Framherjaleit Breiðabliks lokið Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 16:25 Þorleifur Úlfarsson er genginn í raðir Breiðabliks aftur. Mynd/Breiðablik Breiðablik hefur gengið frá kaupum á Þorleifi Úlfarssyni sem mun leika með liðinu í Bestu deild karla. Blikar hafa verið sagðir í leit að framherja og Þorleifur kemur til liðsins eftir að hafa verið þar síðast í fyrra.
Þorleifur er uppalinn Bliki en hefur verið á flakki undanfarin ár, eftir að hafa gert gott mót í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hann fór í kjölfarið í MLS-deildina þar sem hann spilaði með Houston Dynamo. Þaðan fór Þorleifur til Debrecen í Ungverjalandi en kom meiddur heim til Blika í fyrra eftir stutt stopp hjá Ungverjunum. Þorleifur kom sér aftur í stand í Kópavoginum, spilaði aðeins þrjá leiki, og fékk í kjölfarið skipti til Loudoun United í USL-deildinni, sem kalla má næst efstu deild í Bandaríkjunum. Hann skoraði þar átta mörk í 17 leikjum á um ári en er nú snúinn aftur heim og mun veita Kristófer Inga Kristinssyni samkeppni um framherjastöðu Breiðabliksliðsins. Alls hefur Þorleifur spilað fjóra deildarleiki fyrir Breiðablik hér heima en leitar enn fyrsta marksins fyrir félagið. Hann hefur einnig spilað fyrir Augnablik og Víking Ólafsvík hér heima. Breiðablik er í hálfgerðu einskis manns landi í Bestu deild karla, situr í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig, heilum sjö stigum frá KR sem er þar fyrir ofan og sjö stigum fyrir ofan Keflavík sem er þar fyrir neðan. Fram undan er bikarúrslitaleikur við Aftureldingu sem getur tryggt Blikum Evrópusæti fyrir næstu leiktíð. Sá leikur fer fram eftir rúman mánuð, þann 11. september á Laugardalsvelli.
Breiðablik Besta deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira