Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Árni Sæberg skrifar 7. ágúst 2026 15:52 Gunnar Þórðarson setti mark sitt á sögu Reykjanesbæjar. Anton Brink Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að greiða hluta kostnaðar af útför Gunnars Þórðarsonar, sem verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju næstkomandi fimmtudag. „
Bæjarráð samþykkir að koma að útfararkostnaði Gunnars Þórðarsonar samkvæmt umræðum á fundinum. Jafnframt að flaggað verði í hálfa stöng á útfarardegi við stofnanir bæjarins,“ segir í fundargerð fundar bæjarráðs Reykjanesbæjar, sem haldinn var í gær. Fjárhæð er ekki tiltekin í fundargerðinni en Ríkisútvarpið hefur eftir Vilhjálmi Árnasyni að hálf milljón króna verði látin af hendi rakna. Það sé í samræmi við kostnað af öðrum útförum sem bærinn hefur tekið þátt í kostnaði af. Gunnar fæddist á Hólmavík 4. janúar 1945 en fluttist aðeins átta ára gamall til Keflavíkur, sem nú tilheyrir Reykjanesbæ, og við þann bæ hefur hann ávallt verið kenndur. Þar voru lögð drög að glæstum ferli og Gunnar ber sína ábyrgð á því að Keflavík hefur löngum verið kölluð Bítlabærinn. Þá var Gunnar útnefndur bæjarlistamaður Keflavíkur árið 1992 og varð með því annar til að hljóta nafnbótina. Útför Gunnars verður gerð frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 13. ágúst klukkan 15. Í dánartilkynningu afþakka aðstandendur hans blóm og kransa en beina því til þeirra sem vilja minnast Gunnars að styrkja tónlistarskóla að eigin vali.
Reykjanesbær Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Óvænt frumvarp innviðaráðherra beint á dagskrá Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Frumvarp innviðaráðherra óvænt rætt í þinginu í dag Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Sjá meira