Vísa máli Fauci til dómstóla Agnar Már Másson skrifar 6. ágúst 2026 15:22 Anthony Fauci, fyrrverandi yfirmaður sóttvarna í Bandaríkjunum, í þinghúsi Bandaríkjanna. AP/Allison Robbert Þingnefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings hefur vísað máli Anthony Fauci sóttvarnarlæknis til dómstóla, þar sem hann er sakaður um að sýna þinginu vanvirðingu eftir að hann neitaði að svara spurningum í yfirheyrslu þar sem viðbrögð hans við Covid-19 heimsfaraldrinum voru til umfjöllunar.
Þetta gerir nefndinni kleift að vísa málinu til dómsmálaráðuneytisins vegna hugsanlegrar saksóknar fyrir að hafa ekki farið að stefnu þingsins. Enn er óljóst hvort ráðuneytið muni fylgja málinu eftir. Í vitnisburði sínum í síðustu viku skaut Fauci sér meira en hundrað sinnum undan svari á grundvelli fimmta ákvæðis stjórnarskrár Bandaríkjanna um rétt fólks til að fella ekki á sig sök. Þetta gerði hann þrátt fyrir að Joe Biden hafi á síðustu dögum forsetatíðar sinnar veitt Fauci náðun en það gerði hann af ótta við að Donald Trump og Repúblikanar ætluðu sér að beita dómskerfinu gegn honum. Fauci hélt því einnig fram að Rand Paul, formaður þingnefndarinnar, væri að reyna að koma honum „bak við lás og slá“. Þrátt fyrir náðunina hafa Repúblikanar sagt að hægt væri að sækja Fauci til saka fyrir að segja þingmönnum ósatt. Lögmaður Fauci kallar ákvörðunina „grófa pólitíska brellu“ sem væri sett á svið til að „refsa Fauci fyrir að nýta stjórnarskrárvarinn rétt sinn“. Í upphafsummælum sínum sagðist Fauci, sem er 85 ára gamall, sannfærður um að hann hefði verið boðaður á þennan fund svo Repúblikanar gætu fundið átyllu til að láta handtaka hann. Hann nefndi sérstaklega Paul sem Fauci sagði með þráhyggju gagnvart sér.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira