Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2026 14:57 Donald Trump virðist verulega ósáttur við fregnir af hergagnaskorti Bandaríkjanna. AP/Mark Schiefelbein Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð.
Fregnir hafa einnig borist af því að Trump hafi skammað Pete Hegseth, varnarmálaráðherra sinn, á fundi í Camp David í síðustu viku. Þá sagði Trump Hegseth að útskýra af hverju hann hefði ekki fengið betri upplýsingar um birgðastöðu Bandaríkjanna og sagðist forsetinn hafa staðið í þeirri trú að búið væri að laga vandamálið. Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar vestanhafs sagt frá því að bandarískir herforingjar hafi áhyggjur af því að verulega hafi verið gengið á birgðir Bandaríkjanna á ýmsum hergögnum. Þær áhyggjur snúa að mestu leyti að flugskeytum í loftvarnarkerfi og langdrægum vopnum eins og stýriflaugum og annars konar eldflaugum. Sjá einnig: Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Í síðasta mánuði gerði Trump hlé á árásum á Íran, eftir að hann fundaði með herforingjum sínum og ráðgjöfum. Á þeim fundi eru margir sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af áðurnefndum tómum hillum. Sjá einnig: Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Staðan í vopnabúrum Bandaríkjanna er talin koma niður á þeim valmöguleikum sem Trump hefur gagnvart Íran en hann hefur ítrekað hótað því að gera gífurlega umfangsmiklar árásir á Íran, gefi klerkastjórnin ekki eftir gagnvart kröfum hans. Hingað til hefur hann þó ekki staðið við þær hótanir. Vill langa fangelsisdóma fyrir lekamenn Í nótt skrifaði forsetinn á Truth Social, sinn eigin samfélagsmiðil, að Bandaríkin ættu gífurlegar birgðir af „skotfærum“ og sérstaklega af tilteknum gerðum þeirra, án þess að segja hvaða gerðum. Þá sagði hann að verið væri að framleiða mikið magn hergagna til viðbótar og jafnvel kaupa ef þörf væri á. Hann sagði einnig að verið væri að byggja nýjar verksmiðjur og auka framleiðsluna meira en nokkru sinni áður, sem er svipuð yfirlýsing og hann sendi Reuters á dögunum vegna fréttar um stöðuna í vopnabúrunum. Við þetta bætti Trump að „lekamennirnir“ yrðu eltir uppi fyrir að veita fjölmiðlum upplýsingar. Þrátt fyrir að segja að upplýsingarnar væru rangar setti Trump þær til jafns við landráð og hét því að lekamennirnir yrðu dæmdir til langrar fangelsisvistar. Sagður hafa skammað Hegseth Trump fundaði í síðustu viku með ráðherrum sínum í Camp David, sumarbústað forsetaembættisins. Þá fundaði hann meðal annars með Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, og er sagður hafa skammað hann. Samkvæmt heimildum Washington Post var Trump ósáttur við að hafa ekki verið meðvitaður um stöðuna og sagðist hann hafa staðið í þeirri trú að búið væri að laga vandamálið. Hegseth er sagður hafa kennt Stephen Feinberg, undirmanni sínum, um bæði hergagnaskortinn og að ekki hafi verið búið að greina Trump frá því almennilega hver staðan væri. Karoline Leavitt, talskona Trumps, segir þessar fregnir vera alfarið rangar.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Sjá meira