Svandís segir nei Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 13:03 Svandís Svavarsdóttir var formaður Vinstri grænna, heilbrigðisráðherra og matvælaráðherra með meiru. Vísir Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Það er þvert á vilja flokksmanna hennar.
Svandís rökstyður ákvörðun sína í færslu á Facebook-síðunni sinni og vonar að hægt sé að takast á um efni atkvæðagreiðslunnar af yfirvegun og virðingu. „Sú niðurstaða byggist hvorki á ótta við breytingar né þeirri skoðun að Ísland eigi að loka sig af. Hún byggist á sannfæringu sem hefur mótast á löngum tíma. Að á tímum mikilla breytinga skipti mestu máli að varðveita sterkt lýðræði og skýra ábyrgð þeirra sem fara með vald,“ segir Svandís. Hún sjái bakslag í mannréttindum og jafnrétti og sífellt fleiri ákvarðanir teknar fjær fólkinu sem þær varða. „Ég hef alla mína pólitísku ævi trúað því að samfélög breytist til hins betra þegar fólk skipuleggur sig, tekur þátt og lætur rödd sína heyrast.“ Reynslan hafi kennt henni að stærstu framfarirnar verði til í samspili stjórnmála og samfélags þar sem hinar ýmsu hreyfingar á við grasrótarhreyfingar og félagasamtök. Þannig hafi hinir ýmsu hópar hlotið aukin réttindi og velferðarsamfélag verið byggt upp. Því eigi að færa valdið nær fólkinu frekar en fjær því. Snúist ekki um viðræðurnar heldur aðild Umræðan að hennar mati snúist ekki um kosti eða galla Evrópusambandsins heldur um hvar valdið eigi að liggja. Þá snúist atkvæðagreiðslan ekki aðeins um að hefja aðildarviðræður heldur hvort sækja eigi um fulla aðild að sambandinu. „Sjálf lít ég svo á að ákvörðunin um að endurvekja umsókn og hefja aðildarviðræður sé í sjálfu sér stór pólitísk ákvörðun og alvöru skref,“ segir hún. „Ég hef líka reynslu af því hversu umfangsmikil og krefjandi slík viðræðuferli eru fyrir lítið ríki með fámennt stjórnkerfi. Þau kalla á mikla vinnu, mikla forgangsröðun og binda um árabil verulegan hluta af getu stjórnsýslunnar. Þess vegna tel ég eðlilegt að spyrja áður en lagt er af stað hvort þetta sé sú leið sem við viljum fara.“ Svandís telur að Ísland eigi samt sem áður að taka virkan þátt í Evrópu og leggja sitt af mörkum. Aðild að Evrópusambandinu sé hins vegar ekki forsenda þess. „Mín reynsla hefur kennt mér að samfélög verða sterkust þegar fólk hefur raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir sem móta líf þess og getur dregið þau sem fara með valdið til ábyrgðar. Þess vegna mun ég segja nei,“ segir Svandís. Nær allir í flokknum segi já Í könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir DV kemur fram að 93,4 prósent þeirra sem kjósa Vinstri græna ætla að segja já í atkvæðagreiðslunni. 6,6 prósent kjósenda Vinstri grænna ætla að segja nei líkt og Svandís. Svandís var kjörin formaður Vinstri grænna í október 2024 og tók við af Guðmundi Inga Guðbrandssyni sem var tímabundið eftir að Katrín Jakobsdóttir sneri sér að forsetaframboði. Svandís sóttist ekki eftir endurkjöri og var Rósa Björk Brynjólfsdóttir við formannssætinu.
Vinstri græn Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira