Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Agnar Már Másson skrifar 5. ágúst 2026 20:31 Já til að SJÁ hafa ekki í hyggju að opna bókhaldið enda séu fjárframlög trúnaðarmál. Áfram Ísland segjast ekki hafa ákveðið hvort bókhaldið verði birt. Samsett Mynd Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. Því mega samtökin þiggja eins mikinn pening í frjáls framlög og þeim sýnist, jafnvel erlendis frá og nafnlaust. Já til að SJÁ segjast ekki hafa í hyggju að opinbera bókhaldið enda séu fjárframlög trúnaðarmál. Áfram Ísland segjast ekki hafa ákveðið hvort bókhaldið verði birt. Hvorki Áfram Ísland né Já til að SJÁ segjast hafa þegið framlög erlendis frá. Einstakar Facebook-auglýsingar toppurinn á ísjakanum Opinber gögn frá Meta sýna að samtökin Áfram Ísland hafi síðasta mánuðinn varið um 700 þúsund krónum í auglýsingadreifingu á miðlum Meta (nánar tiltekið á tímabilinu 4. júlí til 2. ágúst). Jafnframt vörðu félagasamtökin Já til að Sjá (SJÁ) um 70 þúsund krónum á miðlinum og stjórnmálaflokkurinn Viðreisn um 100 þúsund krónum, ef aðeins er litið til þeirra auglýsinga sem varða atkvæðagreiðsluna sjálfa. Þessar fjárhæðir sýna samt aðeins toppinn á ísjakanum enda ná þær einvörðungu utan um auglýsingar á Instagram, Facebook og öðrum miðlum á vegum Meta. Þær ná ekki utan um framleiðslukostnað auglýsinganna, auglýsingadreifingu á öðrum vettvangi – hvað þá annan kostnað við kosningabaráttu, svo sem rekstur kosningaskrifstofu og viðburðahald um allt land. Það er nefnilega dýrt að reka kosningabaráttu, en hvaðan koma þessir peningar? Engar hömlur á frjálsum framlögum Flest þeirra félagasamtaka sem heyja kosningabaráttu um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst eru fjármögnuð með frjálsum framlögum ýmist frá fólki eða fyrirtækjum í landinu. Vissulega hafa Evrópuhreyfingin og Heimssýn þegið tíu milljónir hvor í styrk undir þeim formerkjum að samtökin myndu bæði efla opinbera umræðu um atkvæðagreiðsluna. Ólíkt því sem tíðkast með stjórnmálaflokka er ekkert sett hámark á þá styrki sem einstaklingur eða fyrirtæki getur gefið til félagasamtaka. Sömuleiðis þurfa félagasamtök ekki að birta ársreikninga sína á opinberum vettvangi en það þurfa stjórnmálasamtök að gera. Hvers vegna eru takmörk á fjárframlögum til stjórnmálaflokka? Í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka frá 2006 er kveðið á um hámark á fjárframlögum fyrirtækja og einstaklinga til stjórnmálaflokka. Á móti fá flokkar opinbera styrki úr ríkissjóði. Tilgangurinn með upptöku opinberu styrkjanna og hámarksins var að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum, auka gagnsæi og tryggja sjálfstæði flokkanna frá fjársterkum einkaaðilum. Í dag má hver og einn lögaðili aðeins styrkja stjórnmála flokk um 550 þúsund krónur á ári. Í nýrri skýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) um atkvæðagreiðsluna í ágúst er bent á að félagasamtök sem þessi lúti ekki sömu reglum um gagnsæi eða banni við nafnlausum eða erlendum styrkjum. Viðmælendur skýrsluhöfunda telja þetta geta gert fjársterkum aðilum, innlendum sem erlendum, auðvelt fyrir að hafa áhrif á kosningabaráttuna. Þá er bent á að Ríkisendurskoðun fái ekki fjárhagsskýrslur í hendurnar fyrr en eftir að kosningar eru búnar og hafi ekki heimild til að beita sektum eða viðurlögum sjálf. ÖSE nefnir að íslensk lög kveði ekki á um að félagasamtök eða frumkvæðishópar sem taka þátt í kosningabaráttunni þurfi að skrá sig opinberlega sem „kosningasamtök“. Hver sem er má hefja herferð án þess að tilkynna það til kjörstjórnar. Í Bretlandi þurfa öll félagasamtök eða einstaklingar sem ætla að eyða meira en ákveðinni lágmarksupphæð í tiltekna kosningabaráttu að skrá sig sem viðurkenndan „þriðja aðila“ hjá kjörstjórn. Um leið eru þeim sett takmörk á útgjöldum, bann við framlögum frá erlendum aðilum og gert skylt að opna bókhaldið. Fjárframlögin „trúnaðarmál“ Fréttastofa spurði bæði kosningastjóra Já til að sjá og Áfram Íslands hvort þeir vildu opna bókhaldið. „Við fylgjum settum reglum fyrir félagasamtök og þau framlög sem við höfum fengið eru trúnaðarmál nema annað sé tekið fram. Þetta er kannski frekar spurning til stjórnvalda, hvernig umgjörðin á frjálsum félagasamtökum er,“ svarar Kolbeinn Arnarson, kosningastjóri Sjá. Kolbeinn Arnarson, kosningastjóri SJÁ.Vísir/Lýður „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun á þessum tímapunkti hvort bókhaldið verður gert opinbert að afstaðinni kosningu eða ekki,“ svarar Andri Steinn Hilmarsson, annar tveggja kosningastjóra Áfram Ísland. Andri Steinn Hilmarsson og Agla Eir Vilhjálmsdóttir, kosningastjórar Áfram Ísland.Vísir/Lýður Valberg Hvorki fulltrúar Áfram Ísland né Já til að sjá segjast hafa þegið framlög frá stjórnmálasamtökum eða erlendum aðilum. „Það eru engin stjórnmálasamtök búin að styðja okkur en eðli atkvæðagreiðslunnar samkvæmt er fólk úr ákveðnum flokkum sem er búið að leggja okkur lið,“ viðurkennir Kolbeinn hjá SJÁ. Bæði fulltrúar SJÁ og Áfram Ísland svöruðu þó neitandi spurð hvort þau hefðu þurft að afþakka nokkurt framlag. Að öðru leyti vilja bæði samtökin lítið gefa upp um fjárhagsstöðu sína; hvorki hversu miklu þau hafa safnað né hversu mikið aðilar leggja til. Samtökin vilja heldur ekki gefa upp hve miklu ráðstöfunarfé sé gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun. „Við ætlum ekki að fara út í einstaka styrki,“ segir Agla Eir Vilhjálmsdóttir, annar kosningastjóri Áfram Íslands. „En það eru einstaklingar og fyrirtæki um allt land sem hafa styrkt baráttuna.“ Þakka starf sjálfboðaliða Kolbeinn hjá Sjá segir að stærsti kostnaðarliðurinn í rekstri kosningabaráttunnar séu auglýsingar, en einnig kosti það sitt að reka kosningaskrifstofu. Andri hjá Áfram Ísland tekur í svipaðan streng. „Við erum auðvitað að halda fundi um allt land og töluverður kostnaður fer í slíka fundi og að leigja salarými. Svo er ýmislegt annað tilfallandi, það þarf að framleiða auglýsingaefni og fræðslumyndbönd, birta þau og svo sjá til þess að þau [sjálfboðaliðar] fái eitthvað að borða.“ Hreyfingarnar tvær hafa gripið til fleiri fjármögnunarráða en aðeins frjálsra framlaga, heldur eru þær einnig farnar að selja varning sem merktur er slagorðum hreyfingarinnar, svo sem derhúfur. Þó að mikill kostnaður fylgi kosningabaráttunni segja fulltrúar beggja hreyfinga að starfsemin sé mest megnis keyrð áfram af sjálfboðaliðum. Þótt það kosti sitt að halda þeim vel fóðruðum kveðast bæði Kolbeinn hjá Sjá, og Andri og Agla hjá Áfram Ísland, ekki geta þakkað sjálfboðaliðum sínum nóg fyrir sitt framlag. Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Styrkir til stjórnmálasamtaka Utanríkismál Félagasamtök Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira
Hvers vegna eru takmörk á fjárframlögum til stjórnmálaflokka? Í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka frá 2006 er kveðið á um hámark á fjárframlögum fyrirtækja og einstaklinga til stjórnmálaflokka. Á móti fá flokkar opinbera styrki úr ríkissjóði. Tilgangurinn með upptöku opinberu styrkjanna og hámarksins var að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum, auka gagnsæi og tryggja sjálfstæði flokkanna frá fjársterkum einkaaðilum. Í dag má hver og einn lögaðili aðeins styrkja stjórnmála flokk um 550 þúsund krónur á ári.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Styrkir til stjórnmálasamtaka Utanríkismál Félagasamtök Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira