„Veiddu“ grænmetissala með dróna Samúel Karl Ólason skrifar 4. ágúst 2026 16:04 Sölumaðurinn þykir ótrúlega heppinn að hafa lifað árásina af. Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim.
Lögreglan í Úkraínu birti í morgun myndband af árásinni. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær myndbandið var tekið en það sýnir sölumanninn reyna að komast undan drónanum með því að hlaupa kringum sendiferðabíl sinn. Umræddur dróni er tengdur með mjög þunnri og léttri netsnúru sem gerir flugmanni hans kleift að stýra honum betur í rauntíma gegnum myndavél á drónanum og þar að auki gerir snúran Úkraínumönnum ómögulegt að beita rafrænum truflunum til að láta flugmanninn missa stjórn á honum. Drónum sem þessum er reglulega beitt gegn hermönnum á víglínunni í Úkraínu en einnig gegn óbreyttum borgurum. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, deildi einnig myndbandinu í dag. Hann sagði þetta enn eitt myndbandið af svokölluðum „safaríferðum“ Rússa gegn óbreyttum borgurum í Kherson. Íbúar borgarinnar stæðu frammi fyrir árásum sem þessum á hverjum degi. Þá sagði hann að heimurinn þyrfti að sjá myndbandið. Heimsbúar þyrftu að sjá hverja sönnun þess að Rússar hefðu misst vitið og að rússneskir hermenn fengju ánægju af því að myrða óbreytta borgara og misþyrma þeim. Selenskí sagði nauðsynlegt að stöðva Rússa áður en ógn þeirra dreifði úr sér til annarra ríkja. Umrætt myndband gæti vakið óhug áhorfenda en það sýnir manninn, sem er 52 ára, reyna að biðla til flugmanns drónans um að sýna miskunn áður en dróninn er sprengdur í loft upp við hlið hans. Eins og áður segir lifði maðurinn af. Today, many were shocked by yet another video of the drone “safari” Russians are carrying out against civilians in Kherson. A Russian drone deliberately hunted down a man selling vegetables and detonated right next to him. The Russians even admitted to the crime, showing zero… pic.twitter.com/uGjC7esFwR— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) August 4, 2026 Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem Rússar gerast sekir um beinar árásir sem þessa á óbreytta borgara. Árásirnar hafa verið sérstaklega tíðar í Kherson, eftir að Úkraínumenn frelsuðu borgina úr höndum Rússa árið 2024. Þetta kalla Rússar sín á milli „safarí“ ferðir og hafa þær að miklu leyti beinst að fólki í Kherson. Myndböndum af þessum árásum á óbreytta borgara er oft dreift á samfélagsmiðlum í Rússlandi og þá í þeim tilgangi að afla peninga fyrir hersveitir. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna komst í fyrra að þeirri niðurstöðu að um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu væri að ræða. Þá höfðu nærri því 150 óbreyttir borgarar dáið í þessum árásum og hundruð höfðu særst. Mannréttindaráðið sagði einnig að þegar árásir væru gerðar á óbreytta borgara væru einnig gerðar ítrekaðar árásir á sjúkrabíla og sjúkraflutningamenn sem kæmu fólkinu til aðstoðar. Ekkert bendir til þess að yfirmenn í rússneska hernum eða stjórnmálaleiðtogar hafi reynt að stöðva þessar árásir. Maðurinn ræddi við fjölmiðla í Úkraínu og sýndi meðal annars áverkana sem hann hlaut í árásinni. Везучий пан Юрийhttps://t.co/1DafgCVF1B #warcrimes #всрф pic.twitter.com/KjBQMofFjg— Necro Mancer (@666_mancer) August 4, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Sameinuðu þjóðirnar Hernaður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira