Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 18:26 Tildrög slyssins voru framúrakstur samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra. Vísir Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.
Bílaröð myndaðist á ný á vegkafla við Hrútafjarðarheiði en slysið varð skammt þaðan sem harður árekstur varð á sjötta tímanum, eða um klukkustund fyrr. Fólk sem sat í bílum sínum rauk út til aðstoðar þeim sem höfðu lent út af veginum en Höskuldur B. Erlingsson aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi vestra staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Það voru alls þrír í bílunum tveimur en einn slasaðist í árekstrinum og var sá fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi til aðhlynningar og athugunar. Þetta staðfestir Höskuldur en hann segir ekki um lífshættulega áverka að ræða heldur sé einstaklingur lemstraður eftir slysið. Svipuð slys á sama vegkafla Tildrög slyssins voru að sögn Höskuldar framúrakstur, rétt eins og þess sem varð um klukkustund áður á svipuðum stað. Bílarnir tveir voru báðir á akstri í suðurátt og er talið að þeir hafi rekist saman þegar þeir tóku báðir fram úr bílalestinni sem hefur verið á Hringveginum í mestallan dag. Höskuldur biðlar til vegfarenda sem lentu aftur í töfum á sama vegkafla að sýna stillingu og ítrekar mikilvægi þess að sýna þolinmæði í umferðinni. Það borgi sig ekkert að taka fram úr enda sé umferðin eins þung og hún gerist og ökumenn endi alltaf aftur í bílalestinni sem er á leið í bæinn. Fréttin hefur verið uppfærð. Fjöldi fólks þaut af stað í átt að bílunum tveimur að sögn sjónarvotta.Vísir Sjónarvottar lýsa því að löng bílaröð hafi myndast í annað skiptið þetta kvöld á vegkaflanum.Vísir
Lögreglumál Húnabyggð Húnaþing vestra Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira