Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2026 15:50 Francisco Costa og Viggó Kristjánsson munu manna hægri skyttustöðuna hjá Flensburg frá og með næsta sumri. epa/BO AMSTRUP Þýska handboltafélaginu Flensburg berst heldur betur góður liðsstyrkur næsta sumar þegar portúgölsku bræðurnir, Francisco og Martim Costa, ganga í raðir þess.
Costa-bræðurnir voru mjög eftirsóttir en Flensburg greindi frá því í dag að þeir hefðu samið við félagið til 2032. Þeir koma til Flensburg frá Sporting í Portúgal fyrir tímabilið 2027-28. „Martim og Kiko eru meðal mest spennandi leikmanna sinnar kynslóðar. Þeir koma með handboltagáfur og ástríðu að borðinu og þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir öðlast mikilvæga reynslu á alþjóðavettvangi. Á sama tíma eru þeir jarðbundnir og hungraðir í að ná árangri sem eru eiginleikar sem passa frábærlega inn í okkar lið og hugsunarhátt,“ segir Ales Pajovic, þjálfari Flensburg, í fréttatilkynningu á heimasíðu félagsins. Eldri bróðirinn, Martim Costa, var markakóngur Evrópumótsins 2024.epa/Piotr Polak Viggó Kristjánsson gengur einnig í raðir Flensburg á sama tíma og Costa-bræðurnir. Viggó og Kiko spila báðir stöðu hægri skyttu en Martim er vinstri skytta. Sumarið 2027 hverfa Danirnir Simon Pytlick og Niclas Kirkeløkke hins vegar á braut. Línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson gekk í raðir Flensburg frá Melsungen í sumar. Flensburg hefur einnig fengið sænska markvörðinn Simon Möller, franska leikstjórnandann Aymeric Minne og danska línumanninn Emil Bergholt sem hefur verið gerður að fyrirliða liðsins. Costa-bræðurnir gengu í raðir Sporting frá Porto fyrir fimm árum. Martim er fæddur 2002 en Francisco 2005. Hjá Sporting leika þeir með Orra Frey Þorkelssyni.
Þýski handboltinn Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira