Handbolti

Strákarnir á­fram með fullt hús

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gunnar Róbertsson skoraði sjö mörk fyrir Ísland í dag.
Gunnar Róbertsson skoraði sjö mörk fyrir Ísland í dag. Vísir/Anton Brink

Íslenska drengjalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri vann Sviss á EM 33-28. Liðið fer því í milliriðil með fullt hús stiga.

Íslenska liðið byrjaði betur og komst 5-0 yfir snemma leiks. Strákarnir héldu forystunni eftir það allt til loka og sigurinn aldrei í hættu.

Þar með fylgir Ísland eftir stórsigrum á Svartfjallalandi og Ungverjalandi í riðlinum og endar á toppi hans með fullt hús stiga. Næst á dagskrá er milliriðill.

Gunnar Róbertsson úr Val og Alex Unnar Hallgrímsson úr Fram voru markahæstir í íslenska liðinu með sjö mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×