Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. júlí 2026 06:36 Þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé hafa árásir Ísraels á Gasa haldið áfram. AP/Jehad Alshrafi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samkomulag í höfn um afvopnun Hamas á Gasa og brottför Ísraelshers af svæðinu. Málið er þó langt í frá eins einfalt og það virðist, ef marka má yfirlýsingar Hamas og Ísrael.
Trump sagði í færslu á Truth Social að um væri að ræða mikilvægt skref í átt að því að Gasa kæmist undir stjórn Palestínumanna, sem myndi vinna náið með svokallaðri „Friðarstjórn“ þar sem forsetinn er sjálfur í forsæti. Samkomulagið er liður í vopnahléi sem samið var um í fyrra en gengið hefur hægt að innleiða. Háttsettir Hamas-liðar eru sagðir hafa lagt blessun sína yfir samkomulagið en ljóst er að uppi er ágreiningur um framkvæmd þess. Ghazi Hamad, sem situr í samninganefnd Hamas, sagði í samtali við Al Jazeera og AFP að samtökin myndu ekki afvopnast fyrr en eftir að Ísraelsher hefði hörfað frá Gasa. Á sama tíma sagði heimildarmaður innan stjórnkerfis Ísrael við Reuters að afvopnun Hamas væri forsenda þess að Ísrael stæði við sinn hluta samkomulagsins. Bandaríkjastjórn virðist meðvituð um vandann en haft hefur verið eftir embættismönnum að yfirvöld í Ísrael séu afar efins um að Hamas muni standa við það að afvopnast. Þeir sögðu Trump hins vegar myndu verða fyrir miklum vonbrigðum ef Ísrael stæði ekki við sitt. Hamas samtökin hafa þegar samþykkt að afsala sér völdum á Gasa og koma stjórn svæðisins í hendur teknókrata sem munu njóta stuðnings Sameinuðu þjóðanna. Talsmenn áðurnefndar Friðarstjórnar (e. Board of Peace) segja afvopnun Hamas munu taka milli 200 og 350 daga.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira