Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Jakob Bjarnar skrifar 29. júlí 2026 12:17 Ingi Björn segir að sér líði eins og verið sé að þjófkenna látna eiginkonu sína. Hann segir að það verði einfaldlega að breyta kerfinu og gera það manneskjulegra. bylgjan Ingi Björn Sigurðsson hagfræðingur missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpum tveimur árum en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins; kröfur sem tvöfaldast án útskýringa. „
Þetta er náttúrlega fáránlegt. Við verðum að breyta þessu kerfi og gera það manneskjulegra,“ segir Ingi Björn í samtali við Vísi. Í maí fékk hann rukkun frá ríkisstofnun, innheimta ofgreiddra bóta – áminning. „Þar hefur skuldin vaxið úr 490 þúsund upp í 812 þúsund. Það fylgja engar útskýringar með, ég fór inn á vefinn hjá þeim. Þar eru engar útskýringar, bara bréfið. Það eina sem er í boði er að gera þessa skuld upp,“ segir Ingi Björn dolfallinn. Gerir ráð fyrir því að svona hagi handrukkarar sér Ingi Björn segist að vísu aldrei hafa lent í handrukkara en hann ímyndar sér að svona gerist þetta á þeim bænum, skuldin tvöfaldist fyrirvaralaust, án útskýringa og ef menn borgi ekki þá fái þeir það óþvegið. Ingi Björn segir að hann hafi ekki enn náð sambandi við Tryggingastofnun til að fá útskýringu á þessu, hann þurfi hreinlega að ná sér niður áður en hann tali við þá þar. Fyrir nokkrum mánuðum opnaði Ingi Björn sig um þá tilfinningalegu byrgði sem fylgir því að gera upp dánarbú. Fráfall Tinnu Hrundar Birgisdóttur konu hans var honum eðlilega gríðarlegt áfall. Börnin eru fjögur frá sjö ára aldri upp í 22 en Tinna var einungis 42 þegar hún féll frá eftir að hafa greinst með krabbamein í heila. Sú frásögn fékk meiri athygli en Inga Björn óraði fyrir og fjöldi manns hefur haft samband við hann síðan og sagt honum sögur sem fá hárin á venjulegu fólki til að rísa. Upphæðin hrökk úr 490 þúsund krónum í 812 þúsund Í gær kom svo annað högg sem Ingi Björn segir að hann vilji upplýsa um ef það megi verða til þess að stofnunin breyti um verklag, það sé ekki annað hægt. Eftir að veikindin komu upp varð Tinna öryrki en hún var menntaður viðskiptafræðingur. Henni var gert að fylla út upplýsingar um tekjur í stað þess að nota rauntímagögn sem eru fyrirliggjandi. Ingi Björn fór vandlega yfir málið í Facebook-færslu sem hann birti í morgun: „Samkvæmt þeim útreikningum sem ég fékk þá ofborgaði stofnunin á þessum þremur mánuðum Tinnu um 716 þúsund. Það er sláandi upphæð, Tinna var enginn kjáni, hún var ekki óheiðarleg og síðast af öllu vildi hún leggja þessar birgðir á okkur. Ekki nóg með að stofnunin sé að rífa upp sár þá er hluti af óbragðinu að stofnunin er að þjófkenna Tinnu. Það er verið að sverta minningu hennar,“ segir Ingi Björn sár og lái honum hver sem vill. Ingi Björn segir að hann hafi hins vegar engar forsendur til að meta hvort Tinna hafi fengið þessa upphæð greidda, hvernig áætlunin leit út og heldur ekki hvernig réttindi eru reiknuð út því við fráfallið var bankareikningum hennar lokað. „Ég bað um útskýringu á útreikningum fyrir árið 2024 en það tók stofnunina marga mánuði að senda mér útskýringar. Útskýringunni var ábótavant og hún var til skammar. Það sem ég fékk var basically, við endurreiknuðum þetta og upprunalega niðurstaðan var rétt. Byrjaðu að borga eða við sendum þetta í innheimtu til sýslumanns.“ Verið að sverta minningu eiginkonunnar Ingi Björn segir að nú séu 500 dagar síðan Tinna dó, manneskjan sé látin. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi sent dánarvottorð til Tryggingastofnunar með það fyrir augum að fá barnabætur. Hann beið hæfilega spenntur en fékk ekki neitt. „Ég fékk ekki neitt og hafði samband við Tryggingastofnun til að spyrja hvort ég hefði gert umsóknina vitlaust, en, nei, þá tekur stofnunin sér fimm vikur í að ákveða hvort dánarvottorð sé gilt! Þessi vinnubrögð eru svo vond.“ Ingi Björn segir að kona sín hafi verið strangheiðarleg en nú líði honum eins og verið sé að þjófkenna hana og sverta minningu hennar. Þessu kerfi verði einfaldlega að breyta.
Fjármál heimilisins Rekstur hins opinbera Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira